Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 400

6. október 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 164 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 399, 400 og 401 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Einar Már Sigurðarson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 400 frá 6.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um framlengingu á staðsetningu starfsmannabúða að Haga 2014

    Mál 1410022 Allur ferill málsins

    Erindi Alcoa Fjarðaáls um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga. Vísað til afgreiðslu eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  2. 2. Aðalfundur SSA 2014

    Mál 1406100 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð aðalfundar SSA 2014 og upplýsingar um samþykkt framlag sveitarfélaga til Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

  3. 3. Beiðni GN um styrk vegna byggingarleyfisgjalda

    Mál 1409182 Allur ferill málsins

    Beiðni Golfklúbbs Norðfjarðar um styrk vegna byggingarleyfisgjalda. Bæjarráð samþykkir að styrkja golfklúbbinn í tilefni af 50 ára afmæli klúbbsins.

  4. 4. Mismunandi aldursmörk þegar kemur að gjaldtöku

    Mál 1409142 Allur ferill málsins

    Umræða um aldurstakmörk vegna gjaldfrelsis í gjaldskrám Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir að frítt verði á söfnin í Fjarðabyggð, fyrir 17 ára og yngri, frá 1.janúar 2015. Bæjarráð óskar jafnframt eftir við fastanefndir að farið verði yfir, í hverjum málaflokki, hvaða möguleikar eru á frekari notkun Fjarðabyggðarkortsins.

  5. 5. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Barnaverndarnefnd

    Mál 1409065 Allur ferill málsins

    Formaður barnaverndarnefndar og félagsmálastjóri sátu þennan lið fundarins. Farið yfir forsendur og áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna barnaverndarmála.

  6. 6. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 auk starfsáætlunar - Menningar- og safnanefnd

    Mál 1409063 Allur ferill málsins

    Formaður menningar- og safnanefndar og forstöðumaður Safnastofnunar sátu þennan lið fundarins. Lagt fram minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu, Safnastofnunar og markaðs- og upplýsingafulltrúa. Farið yfir forsendur og áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna menningar- og safnamála.

  7. 7. Rammasamningar um innkaup rekstrarvara

    Mál 1409198 Allur ferill málsins

    Minnisblað fjármálastjóra um tilhögun innkaupa á almennum rekstrarvörum fyrir Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði en þar er lagt til að gerðir verði fleiri en einn rammasamningar við þá birgja sem vilja og geta boðið stofnunum Fjarðabyggðar upp á viðunandi þjónustu, verð og önnur kjör innkaupa.

  8. 8. Skráning nýs leikskóla í Neskaupstað

    Mál 1410014 Allur ferill málsins

    Tillaga fjármálastjóra um umsókn um sérstaka og frjálsa skráningu vegna byggingar nýs leikskóla í Neskaupstað, ásamt leigusamningi um eignina við Eignarhaldsfélagið Hraun ehf. Bæjarráð samþykkir tillögu og leigusamning og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.

  9. 9. Tilnefning í samgöngunefnd SSA

    Mál 1410002 Allur ferill málsins

    Erindisbréf Samgöngunefndar SSA lagt fram til kynningar. Bæjarráð samþykkir að Einar Már Sigurðarson verði aðalmaður í nefndinni og Kristín Ágústsdóttir til vara.

  10. 10. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2014

    Mál 1409200 Allur ferill málsins

    Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin nk. fimmtudag og föstudag í Reykjavík. Dagskrá lögð fram til kynningar.

  11. 11. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Bæjarráð

    Mál 1409067 Allur ferill málsins

    Lagðar fram greinargerðir bæjarritara og fjármálastjóra vegna sameiginlegs kostnaðar og atvinnumála.

  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 102

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 102 frá 29. september 2014, lögð fram til kynningar.