Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 401

13. október 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 164 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 399, 400 og 401 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Einar Már Sigurðarson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 401 frá 13.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjórðungsmót hestamanna 2015 - beiðni um styrk

    Mál 1410055 Allur ferill málsins

    Hestamannafélagið Freyfaxi mun halda fjórðungsmót hestamanna á næsta ári á héraði. Beiðni um 400.000 kr. styrk. Því miður hefur bæjarráð ekki tök á að verða við beiðni um styrk.

  2. 2. Öldungamót í blaki á Norðfirði 2015

    Mál 1405039 Allur ferill málsins

    Dagana 30.apríl - 2.maí 2015 verður Öldungamót í blaki haldið í Neskaupstað. Óskað er eftir aðkomu Fjarðabyggðar að undirbúningi mótsins og þátttöku í kostnaði. Mannvirkjastjóra falið að ræða við blakdeildina um aðkomu bæjarins að þjónustu vegna innviða bæjarins og leggja niðurstöðu fyrir bæjarráð.

  3. 3. Strandblakvöllur Fáskrúðfirði - umsókn

    Mál 1409196 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Elsu Sigrúnar Elísdóttur, f.h. Blakdeildar Leiknis dagsett 27. september 2014, þar sem sótt er um afnot af svæði undir strandblakvöll ásamt styrk til framkvæmda. Svæðið sem um ræðir er utan við kirkjugarðinn og innan við göngustíg sem liggur milli Skólavegar og íþróttahúss. Óskað er eftir styrk vegna vélavinnu og efniskaupa. Blakdeildin mun sjálf leggja til allan búnað vegna strandblakvallar.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að blakdeildin fái afnot af svæðinu undir strandblaksvöll en vísaði styrkbeiðni til íþrótta- og tómstundanefndar. Bæjarráð samþykkir að blakdeildin fái afnot af svæðinu undir strandblaksvöll og felur mannvirkjastjóra að ræða við blakdeildina um aðstoð vegna framkvæmdarinnar.

  4. 4. Framlag Fjarðabyggðar til Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 1410049 Allur ferill málsins

    Komin er fram beiðni frá stjórn Sjóminjasafns Austurlands um breytingar á endurgjaldi safnsins til Fjarðabyggðar og framlögum Fjarðabyggðar til safnsins. Um er að ræða beiðni um niðurfellingu á endurgjaldi sjóminjasafnsins til Fjarðabyggðar á árunum 2013 og 2014 auk beiðni um hækkun á framlagi bæjarins til safnsins 2014 og 2015 um 200.000 hvort ár. Menningar- og safnanefnd tók vel í beiðnina á fundi 9.október og vísaði henni til bæjarráðs til afgreiðslu. Tekið fyrir á næsta fundi.

  5. 5. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2014

    Mál 1402024 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24. september og 8. október 2014 lagðar fram til kynningar.

  6. 6. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar

    Mál 1409064 Allur ferill málsins

    Bjarni Ómar Haraldsson sérfræðingur á kjarasviði Sambands íslenskra sveitfélaga, sat þennan lið fundarins auk formanns og varaformanns fræðslunefndar, fræðslustjóra og fjármálastjóra. Farið yfir nýjan kjarasamning við félag grunnskólakennara og áhrif hans á skólahald og fjárhagsáætlun ársins 2015. Fræðslunefnd telur óraunhæft að ná þeirri hagræðingu sem fjárhagsramminn kallar á, án róttækrar breytinga á þeirri þjónustu sem veitt er og hefur óskað eftir að bæjarráð endurskoði rammann. Áframhald fjárhagsáætlunarvinnu fræðslumála vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  7. 7. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015

    Mál 1409138 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Rætt um framkvæmdaáætlun hafnarsjóðs. Áframhald fjárhagsáætlunarvinnu hafnarsjóðs vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  8. 8. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Barnaverndarnefnd

    Mál 1409065 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Áframhald fjárhagsáætlunarvinnu málaflokks barnaverndarmála vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  9. 9. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Bæjarráð

    Mál 1409067 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Áframhald fjárhagsáætlunarvinnu málaflokks sameiginlegs kostnaðar vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  10. 10. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

    Mál 1409061 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Áframhald fjárhagsáætlunarvinnu málaflokks framkvæmdasviðs vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  11. 11. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Félagsmálanefnd

    Mál 1409066 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Áframhald fjárhagsáætlunarvinnu málaflokks félagsmála vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  12. 12. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundanefndar

    Mál 1409062 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Áframhald fjárhagsáætlunarvinnu málaflokks æskulýðsmála vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  13. 13. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 auk starfsáætlunar - Menningar- og safnanefnd

    Mál 1409063 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lagt fram minnisblað um fjárhagsramma menningar- og safnamála á árinu 2015. Menningar- og safnanefnd er sammála efni minnisblaðs um að þörf er á viðbótarfjármagni til safnsins Fransmenn á Íslandi og vísar beiðni þar um til bæjarráðs. Forstöðumanni falið að fylgja málinu eftir við bæjarráð. Menningar- og safnanefnd samþykkir að öðru leyti úthlutun á fjárhagsramma til málaflokks menningarmála. Jafnframt samþykkir nefndin hækkun á gjaldskrá safna, sbr. minnisblað forstöðumanns Safnastofnunar og 3,4% hækkun á gjaldskrá bókasafna. Nefndin samþykkir einnig drög að starfsáætlun menningar- og safnamála fyrir árið 2015. Menningar- og safnanefnd vísar starfs- og fjárhagsáætlunum 2015 til umfjöllunar í bæjarráði og gjaldskrá bókasafna og gjaldskrá safna til staðfestingar bæjarráðs. Áframhald vinnu við málaflokk menningarmála vísað til bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  14. 14. Ástand gamla skólans á Eskifirði

    Mál 1410077 Allur ferill málsins

    Bréf Veraldarvina til Fjarðabyggðar frá 10.október sl., vegna stöðu mála við framkvæmdir við Gamla barnaskólann á Eskifirði, ásamt uppfærðri framkvæmda- og kostnaðaráætlun. Bæjarstjóra og formanni bæjarráðs, falið að funda með framkvæmdastjóra Veraldarvina og fara yfir uppgerð hússins að Strandgötu 65 og umgengni Veraldarvina.

  15. 15. Málþing um tónlistarfræðslu, uppeldi og samfélag

    Mál 1410078 Allur ferill málsins

    Málþing um tónlistarfræðslu, uppeldi og samfélag verður haldið í Reykjavík 17. október nk. Vísað til fræðslustjóra til kynningar.

  16. 16. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2014

    Mál 1405009 Allur ferill málsins

    Bæjarráð er sammála um að Valdimar O. Hermannsson verði fulltrúi Fjarðabyggðar í stjórn Náttúrustofu Austurlands og Berglind Steina Ingvarsdóttir til vara. Sameiginlegur fulltrúi Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs í stjórninni verði Líneik Anna Sævarsdóttir.

  17. 17. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014

    Mál 1401186 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 59 frá 6. október 2014, lögð fram til kynningar.

  18. 18. Hafnarstjórn - 138

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 138 frá 7.október 2014, lögð fram til kynningar.

  19. 19. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 103

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 103 frá 6.október 2014, lögð fram til kynningar.

  20. 20. Íþrótta- og tómstundanefnd - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 5 frá 7.október 2014, lögð fram til kynningar.

  21. 21. Fræðslunefnd - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 6 frá 8.október 2014, lögð fram til kynningar.

  22. 22. Menningar- og safnanefnd - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 5 frá 9.október 2014, lögð fram til kynningar.