Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Strandblakvöllur Fáskrúðfirði - umsókn

Mál 1409196 Fyrst á dagskrá 13. október 2014, síðast 16. október 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 401 liður 3

    Lagt fram bréf Elsu Sigrúnar Elísdóttur, f.h. Blakdeildar Leiknis dagsett 27. september 2014, þar sem sótt er um afnot af svæði undir strandblakvöll ásamt styrk til framkvæmda. Svæðið sem um ræðir er utan við kirkjugarðinn og innan við göngustíg sem liggur milli Skólavegar og íþróttahúss. Óskað er eftir styrk vegna vélavinnu og efniskaupa. Blakdeildin mun sjálf leggja til allan búnað vegna strandblakvallar.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að blakdeildin fái afnot af svæðinu undir strandblaksvöll en vísaði styrkbeiðni til íþrótta- og tómstundanefndar. Bæjarráð samþykkir að blakdeildin fái afnot af svæðinu undir strandblaksvöll og felur mannvirkjastjóra að ræða við blakdeildina um aðstoð vegna framkvæmdarinnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 164 liður 3.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 401“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is