Hafnarstjórn, fundur 138
7. október 2014, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eiður Ragnarsson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 401 liður 18
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 138 frá 7.október 2014, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 164 liður 6
Til máls tók Eiður Ragnarsson.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 138 frá 7.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Seatrade Med Cruise 2014 í Barcelaona
Mál 1403105 Allur ferill málsins
Skýrsla frá sölusýningu í Barcelaona sem haldin var dagana 16 til 18. september 2014. Kynnt.
-
2. Kynning á Bláfánaverkefni Landverndar
Mál 1410021 Allur ferill málsins
Fulltrúi Landverndar hélt kynningu á Bláfánaverkefni Landverndar fyrir starfsmenn sveitarfélagsins þann 2. október s.l. Gerð var grein fyrir kynningunni og fyrir hvað Bláfáninn stendur. Framkvæmdastjóra falið að skoða hvaða möguleikar eru fólgnir í þessu fyrir hafnir Fjarðabyggðar.
-
3. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
Mál 1409138 Allur ferill málsins
Undirbúningsvinna við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2015 ásamt langtímaáætlun. Tillaga að fjárhagsáætlunarramma lögð fram ásamt langtímaáætlun, gjaldskrá og forgangsröðun verkefna. Vísað til bæjarráðs.
-
4. Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað
Mál 1311101 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn fjallaði um lóðamál fyrir Netagerðina á Norðfirði. Lagðar voru fram hugmyndir frá siglingasviði Vegagerðarinnar ásamt greinargerð að staðsetningu nýbyggingar fyrirtækisins á hafnarsvæðinu á Norðfirði. Framkvæmdastjóra í samráði við bæjarstjóra falið að kynna hugmyndir nefndarinnar að staðsetningu.