Hafnarstjórn, fundur 137
23. september 2014, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 398 liður 22
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 137 frá 23. september 2014, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 163 liður 5
Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 137 frá 23.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað
Mál 1311101 Allur ferill málsins
Erindi frá Fjarðaneti dags. 18. september 2014, þar sem óskað er eftir að skoðað verði mögulegar lóðir til byggingar nýs netaverkstæðis Fjarðanets í Neskaupstað. Þennan fundarlið sátu Jónn Einar Marteinsson framkvæmdastjóri Fjarðanets og Sigurður Áss Grétarsson frá siglingasviði Vegagerðarinnar. Jón kynnti hugmyndir Fjarðanets. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.
-
2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2014
Mál 1401229 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 366 frá 15. ágúst 2014. Til kynningar.
-
3. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2014
Mál 1401229 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 367 dags. 3. september 2014 . Til kynningar
-
4. Strand Samskip Akrafell
Mál 1409047 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu.
-
5. Strand Green Freezer
Mál 1409140 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu.
-
6. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
Mál 1409138 Allur ferill málsins
Undirbúnings vinna að gerð fjárhagsáætlunar hafnarsjóðs fyrir 2015 ásamt langtímaáæltun. Framkvæmdastjóri vinnur áætlunina áfram.