Bæjarráð, fundur 398
29. september 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, varamaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 163 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs nr. 397 og 398 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 398 frá 29.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015
Mál 1407033 Allur ferill málsins
Umræða um fjárhagsáætlunargerð 2015.
-
2. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
Mál 1409138 Allur ferill málsins
Formaður hafnarstjórnar, sem var í símasambandi, framkvæmdastjóri hafnanna og fjármálastjóri, sátu þennan lið fundarins. Farið yfir forsendur og áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna málefna hafnarsjóðs.
-
3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Félagsmálanefnd
Mál 1409066 Allur ferill málsins
Formaður félagsmálanefndar, félagsmálastjóri og fjármálastjóri, sátu þennan lið fundarins. Farið yfir forsendur og áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna félagsmála.
-
4. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Mál 1409061 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri og fjármálastjóri, sátu þennan lið fundarins. Farið yfir forsendur og áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna veitustofnana og viðhalds þeirra á árinu 2015.
-
5. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015
Mál 1409057 Allur ferill málsins
Framkvæmdstjóri hafna og fjármálastjóri sátu þennan lið fundarins. Umsóknir um byggðakvóta lagðar fram til staðfestingar. Bæjarráð staðfestir umsóknir, felur bæjarstjóra að undirrita þær og senda þær til ráðuneytis.
-
6. Frumvarp um breytingu á hafnalögum - nr. 61/2003
Mál 1409183 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að ályktun hafnasambandsþings í Vestmannaeyjum og hafnasambands Íslands er varðar breytingu á hafnalögum.
-
7. Bygging leikskóla á Neseyri - Trúnaðarmál
Mál 1402081 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri og fjármálastjóri sátu þennan lið fundarins. Lagðir fram minnispunktar frá mannvirkjastjóra, dagsettir 11. september 2014, varðandi stöðu á byggingu leikskóla í Neskaupstað. Auk þess eru lagðar fram byggingarnefndarteikningar af 8 deilda leikskóla í Neskaupstað. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, fyrirkomulag útboðs og teikningar og vísaði afgreiðslu til bæjarráðs. Kostnaðaráætlun lögð fram. Útboðsskilmálar gera ráð fyrir að leikskólinn verði tilbúinn til afhendingar 1.ágúst 2016. Bæjarráð samþykkir fyrirkomulag útboðs og felur mannvirkjastjóra að auglýsa það.
-
8. Fjárhagsáætlun 2014 - viðauki 8 - SKO
Mál 1409149 Allur ferill málsins
Viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2014 er varðar viðhaldsframkvæmdir við Skíðamiðstöðina í Oddskarði. Viðauki lagður fram til kynningar og honum vísað til samþykktar í bæjarstjórn.
-
9. Eistnaflug 2015
Mál 1312019 Allur ferill málsins
Fyrirkomulag Eistnaflugs hefur í tvígang verið kynnt í menningar- og safnanefnd og hefur nefndin engar athugasemdir gert við hugmyndir um fyrirkomulagið 2015. Bæjarráð samþykkir að Eistnaflug 2015 verði haldið í Íþróttahúsinu í Neskaupstað. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við forsvarsmenn Eistnaflugs um fyrirkomulag hátíðarinnar.
-
10. Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn
Mál 1409160 Allur ferill málsins
Námskeið Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir sveitarstjórnarmenn, fer fram á Egilsstöðum föstudaginn 31.október. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að koma upplýsingum til bæjarfulltrúa og nefndarmanna.
-
11. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 8.okt. 2014
Mál 1409168 Allur ferill málsins
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn 8.október á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl. 16:00. Jón Björn Hákonarson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
-
12. Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 10.okt. 2014
Mál 1409162 Allur ferill málsins
Ársfundur fer fram á Hilton Reykjavík Nordica í Reykjavík 10.október kl. 13:00. Páll Björgvin Guðmundsson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
-
13. Aðalfundarboð Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Mál 1409185 Allur ferill málsins
Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga verður haldinn 8.október kl. 13:00 á Hilton Reykjavík Nordica. Páll Björgvin Guðmundsson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
-
14. Umsögn um reglugerð um starfsemi slökkviliða (drög)
Mál 1409175 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar drög að umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um reglugerð um starfsemi slökkviliða. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.
-
15. Erindi Íslandspósts um fækkun dreifingardaga
Mál 1409184 Allur ferill málsins
Tilkynning Íslandspósts um fækkun dreifingardaga í dreifbýli í nágrenni Neskaupstaðar, Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar úr fimm dögum í þrjá. Óskað er eftir umsögn til Póst- og fjarskiptastofnunar fyrir 3.október nk. Páll Björgvin Guðmundsson mun sækja kynningarfund vegna málsins.
-
16. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
Mál 1401186 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 58 frá 22. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 101
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 101 frá 22. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
18. Fræðslunefnd - 5
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 5 frá 23. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
19. Menningar- og safnanefnd - 4
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 4 frá 25. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
20. Tillaga að breytingum á gjaldskrá safna í Fjarðabyggð fyrir árið 2015
Mál 1407016 Allur ferill málsins
Minnisblað forstöðumanns Safnastofunar lagt fram en þar er lagt til að hækkanir á gjaldskrá verði í tveimur þrepum, fyrri hækkun verði á árinu 2015 og síðari hækkun á árinu 2016. Menningar- og safnanefnd hefur samþykkt tillögu í minnisblaði. Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá skv. tillögu í minnisblaði.
-
21. Íþrótta- og tómstundanefnd - 4
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 4 frá 25. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
22. Hafnarstjórn - 137
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 137 frá 23. september 2014, lögð fram til kynningar.