Fræðslunefnd, fundur 5
23. september 2014, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 398 liður 18
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 5 frá 23. september 2014, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 163 liður 6
Til máls tók Elvar Jónsson.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 5 frá 23.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Skólastjórar leikskólanna í Fjarðabyggð gera grein fyrir starfi skólanna.
Mál 1409147 Allur ferill málsins
Skólastjórar leikskólanna í Fjarðabyggð komu á fund fræðslunefndar og gerðu grein fyrir starfi skólanna. Fræðslunefnd þakkar skólastjórunum fyrir greinargóðar upplýsingar.
-
2. Starfsáætlun 2015 - fræðslumál
Mál 1408014 Allur ferill málsins
Unnið var áfram með drög að starfsáætlun fyrir árið 2015.
-
3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar
Mál 1409064 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri fór yfir þann þátt fjárhagsáætlunar sem snýr að launum. Fræðslustjóri hefur heimsótt fræðslustofnanir og farið yfir launaáætun. Nefndin felur fræðslustjóra að skoða í vikunni launaáætlanir enn frekar og gæta þess að þær standist úthlutað kennslutímamagn og horfur á nemendafjölda í skólunum samhliða sem farið verður yfir aðra rekstrarliði fjárhagsáætlunar. Í næstu viku mun formaður nefndarinnar og fræðslustjóri fara á fund bæjarráðs og kynna stöðu mála.