Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 4

9. september 2014, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður
  • Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 396 liður 18

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 4 frá 9. september 2014, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 162 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 4 frá 9.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skólastjórar grunnskóla gera grein fyrir starfi skólanna

    Mál 1409038 Allur ferill málsins

    Skólastjórar grunnskólanna í Fjarðabyggð koma á fund fræðslunefndar og gerðu grein fyrir starfi skólanna. Fræðslunefnd þakkar skólastjórunum fyrir greinargóðar upplýsingar.

  2. 2. Málþing sambands íslenskra sveitarfélaga um skólamál "Hvað fékkstu á prófinu?"

    Mál 1406131 Allur ferill málsins

    Formaður fræðslunefndar og fræðslustjóri sátu málþing sambands íslenskra sveitarfélaga um skólamál 8. september og gerðu nefndinni grein fyrir því helsta sem þar kom fram.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd hefur borist fjárhagsrammi fyrir fjárhagsáætlun 2015. Í fjárhagsrammanum er gert ráð fyrir samtals tekjum upp á 194.436.000 kr., laun og launatengd gjöld 1.323.394.000 kr., millifærð húsa- og vélaleiga 448.243.000 kr. og annar rekstrarkostnaður 293.150.000 kr. eða samtals gjöld upp á 2.064.787.000 kr. Þeim tilmælum er beint til fræðslunefndar að leita allra leiða til frekari hagræðingar í málaflokki sínum og ítrasta aðhalds verði gætt eins og áður í rekstri á komandi ári. Gert er ráð fyrir að starfs- og fjárhagsáætlun einstakra málaflokka sé skilað til fjármálasviðs eigi síðar en 10. október. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að vinna með skólastjórum að fjárhagsáætlunargerð fyrir hverja stofnun fyrir sig og leggja drög að áætlun fyrir næsta fund nefndarinnar.

  4. 4. Starfsáætlun 2015 - fræðslumál

    Mál 1408014 Allur ferill málsins

    Unnið var áfram með drög að starfsáætlun fyrir árið 2015.

  5. 5. Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns

    Mál 1409039 Allur ferill málsins

    Fræðslunefnd fór yfir viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns fyrir grunnskóla.