Bæjarráð, fundur 396
15. september 2014, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 162 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 395 og 396 teknar saman til afgreiðslu.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 396 frá 15.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 740 Nesgata 39a - stækkun lóðar.
Mál 1409017 Allur ferill málsins
Erindi vísað frá eigna-skipulags og umhverfisnefnd. Lögð fram beiðni Sigurðar Þorkelssonar og Sólveigar Eyjólfsdóttur eiganda Nesgötu 39a á Norðfirði, dagsett 28. ágúst 2014, þar sem óskað er eftir að svæði sem þau hafa haft í fóstri frá 2002 verði sameinuð lóð þeirra. Samþykki nágranna liggur fyrir. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt stækkun lóðarinnar fyrir sitt leyti. Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.
-
2. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015
Mál 1409057 Allur ferill málsins
Bréf frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett 2. september 2014, þar auglýst er eftir umsóknum um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015. Umsóknarfrestur bæjarstjórnar er til 30. september 2014. Bæjarráð samþykkir að sækja um byggðarkvóta fyrir alla bæjarkjarnana í Fjarðabyggð og felur framkvæmdastjóra hafna að leggja fram umsóknir til atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis.
-
3. Ársreikningur 2013 - Veturhús
Mál 1409070 Allur ferill málsins
Ársreikningur Veturhúsa 2013 lagður fram til kynningar. Vísað til yfirferðar og skoðunar hjá bæjarritara.
-
4. Beiðni um viðbótarfjármagn vegna nauðsynlegra framkvæmda í SKO haustið 2014
Mál 1409020 Allur ferill málsins
Bréf íþrótta-og tómstundafulltrúa og mannvirkjastjóra, vegna viðhaldsmála á Skíðasvæðinu í Oddsskarði og nauðsynlegra úrbóta fyrir veturinn 2014-2015. Bæjarráð samþykkir að fara í þær framkvæmdir sem lagðar eru til í bréfinu, allt að 5 millj. kr. Vinna þarf viðauka við fjárhagsáætlun 2014 en viðhaldsframkvæmdir verða teknar af handbæru fé aðalsjóðs. Vísað til fjármálastjóra.
-
5. Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2014
Mál 1408117 Allur ferill málsins
Vísað til bæjarráðs frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Lagt fram bréf frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, dagsett 27. ágúst 2014, varðandi Dag íslenskrar náttúru, sem haldinn er hátíðlegur 16. september. Nefndin leggur til að fólkvangur og friðland við Hólmanes verði kynnt sérstaklega í tengslum við Dag íslenskrar náttúru 2014.
Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur markaðs-og kynningarfulltrúa að vinna að kynningunni með framkvæmdasviði.
-
6. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Bæjarráð
Mál 1409067 Allur ferill málsins
Fjárhagsrammar fyrir fjárhagsáætlun 2015 í atvinnumálum og sameiginlegum kostnaði, lagðir fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja vinnu við fjárhagsáætlun 2015, er snýr að atvinnumálum og sameiginlegum kostnaði.
-
7. Löggæslumálefni, framkvæmdavald og stjórnsýsla ríkisins í héraði
Mál 1408052 Allur ferill málsins
Á fund bæjarráðs mættu Inger l. Jónsdóttir Sýslumaður á Eskifirði og Lárus Bjarnason Sýslumaður á Seyðisfirði, ásamt Jóni Halldóri Guðmundssyni skrifstofustjóra embættisins á Seyðisfirði og Jónasi Vilhelmssyni yfirlögregluþjóni á Eskfirði. Farið yfir ný embætti sýslumanns og lögreglustjóra á Austurlandi.
Bæjarráð mótmælir harðlega að ekki skuli vera tryggt nægt fjármagn til að halda uppi óbreyttri þjónustu við embætti sýslumanns og lögreglu á Austurlandi eins og boðað var í kynningu innanríkisráðherra. Hvetur bæjarráð nýjan dómsmálaráherra og fjárlaganefnd að gera nauðsynlega leiðréttingu á þessu og taka á uppsöfnuðum halla embættanna á liðnum árum. Þá skorar bæjarráð á stjórnvöld að standa við fyrirheit um flutning verkefna og ný störf til embættanna líkt og boðað var í fyrrgreindum tillögum. Bæjarstjóra falið að koma ofrangreindu á framfæri við dómsmálaráðherra, innanríkisráðherra og fjárlaganefnd.
-
8. KFF - stúka
Mál 1409085 Allur ferill málsins
Fyrir liggur bréf Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar, dagsett 12. september 2014, beiðni um byggingu áhorfendastúku við Eskjuvöll Eskifirði, en Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar hefur unnið sér rétt til að leika í 1.deild Íslandsmótsins í knattspyrnu að ári. Leikheimild í 1. deild fylgir krafa um bætta aðstöðu frá KSÍ fyrir áhorfendur, skv. reglugerð um knattspyrnuleikvanga.
Bæjarrráð samþykkir að fela formanni bæjarráðs, bæjarstjóra og Elvari Jónssyni bæjarfulltrúa að fara yfir málið í samstarfi við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar.
-
9. Útleiga á íþróttahúsi Norðfjarðar - BRJÁN
Mál 1409087 Allur ferill málsins
Fyrir liggur beiðni Hljóðkerfaleigu Austurlands, fyrir hönd BRJÁN, um afnot af íþróttahúsinu í Neskaupstað til tónleikahalds dagana 4. október og 11. október 2014.
Bæjarráð samþykkir beiðnina, fyrir sitt leyti, en vísar til umræðu í íþrótta og tómstundanefnd stefnumörkun um leigu íþróttamannvirkja. Bæjarráð leggur til að horft verði til umfangs skemmtana sem ekki komast fyrir í félagsheimilum bæjarkjarnanna og starfsemi skóla og íþróttafélaga.
-
10. Útleiga á íþróttahúsi Norðfjarðar - árshátíð Fjarðabyggðar
Mál 1409086 Allur ferill málsins
Erindi frá skemmtifélagi starfsmanna Fjarðabyggðar, dagsett 12.september 2014, þar sem Stella Rut Axelsdóttir formaður félagsins sækir um, fyrir hönd félagsins, afnot af íþróttahúsinu í Neskaupstað 20.september nk. Þann dag verður haldin árshátíð allra starfsmanna sveitarfélagsins og hentar húsnæði íþróttahússins best fyrir árshátíðina.
Bæjarráð samþykkir beiðni SSF.
-
11. Kynning á lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga
Mál 1409092 Allur ferill málsins
Til fundarins mættu Guðmundur V. Friðjónsson og Gerður Guðjónsdóttir frá Lífeyrisstjóði starfsmanna sveitarfélaga og kynntu málefni sjóðsins.
-
12. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
Mál 1401186 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 57 frá 8.september, lögð fram til kynningar.
-
13. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014
Mál 1402090 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 46 frá 10.september 2014, lögð fram til kynningar.
-
14. Íþrótta- og tómstundanefnd - 3
Fundargerð íþrótta og tómstundanefndar, nr. 3 frá 11. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 100
Fundargerð skipulags og umhverfisnefndar, nr. 100 frá 8. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
16. Hafnarstjórn - 136
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 136 frá 8. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
17. Menningar- og safnanefnd - 3
Fundargerð menningar- og safanefndar, nr. 3 frá 11. september 2014, lögð fram til kynningar.
-
18. Fræðslunefnd - 4
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 4 frá 9. september 2014, lögð fram til kynningar.