Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 397

22. september 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 163 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 397 og 398 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 397 frá 22.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ársfundur Austurbrúar ses. 2014

    Mál 1404114 Allur ferill málsins

    Framhaldsársfundur Austurbrúar verður haldinn 30.september 2014 kl. 15:00. Jón Björn Hákonarson verður fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum og Eydís Ásbjörnsdóttir til vara.

  2. 2. Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2014

    Mál 1409118 Allur ferill málsins

    Boðið verður upp á fimm fundardaga með fjárlaganefnd Alþingis í lok september og fram undir miðjan október. Hver fundur stendur í 15 til 20 mínútur. Bæjarráð óskar eftir að funda með nefndinni 8.október.

  3. 3. Geymslusvæði fyrir gáma í Fjarðabyggð

    Mál 1402076 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra. Samþykkt um gjaldskrá fyrir stöðuleyfi frá 25.júlí 2014 stangast á við gjaldskrá um byggingarleyfis- og þjónustugjöld byggingafulltrúa. Lagt er til að fresta gildistöku nýrrar gjaldskrár til áramóta en gjaldskráin tók gildi 1.ágúst sl. Bæjarráð samþykkir að fresta gildistöku gjaldskrár stöðuleyfa til áramóta og vísar málinu til frekari vinnslu í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  4. 4. Tillaga að breytingum á gjaldskrá safna í Fjarðabyggð fyrir árið 2015

    Mál 1407016 Allur ferill málsins

    Minnisblað forstöðumanns Safnastofnunar vegna breytinga á gjaldskrá safnanna. Lagt er til að gjaldskrá hækki í tveimur skrefum 2015 og 2016. Bæjarráð óskar eftir umsögn frá menningar- og safnanefnd og óskar jafnframt eftir að aldursviðmið á söfnunum verði tekið til skoðunar.

  5. 5. Tilmæli Samkeppniseftirlitsins vegna samkeppnishamlandi aðgerða Hafnarfjarðarbæjar í tengslum við miðlun rafrænna reikninga

    Mál 1409112 Allur ferill málsins

    Minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu, vegna erindis Sendils, lagt fram. Þar kemur fram að Samkeppniseftirlitið hefur ekki beint neinum tilmælum til Fjarðabyggðar í tengslum við miðlun ræfrænna reikninga. Vísað til fjármálastjóra.

  6. 6. Nýr ferðaþjónustubíll

    Mál 1409126 Allur ferill málsins

    Lagðar fram hamingjuóskir frá Sjálfsbjörgu, í tengslum við að tekinn hefur verið í notkun nýr ferðaþjónustubíll í Fjarðabyggð fyrir fatlaða. Vísað til kynningar í félagsmálanefnd.

  7. 7. Umhverfisvænir pokar

    Mál 1409143 Allur ferill málsins

    Beiðni um þátttöku í fjáröflunarverkefni SEM samtakanna og MND félagsins á vormánuðum 2015.

    Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til umfjöllunar eigna- skipulags- og umhverfisnefndar í tengslum við átaksverkefni í sorpmálum.

  8. 8. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2014

    Mál 1402024 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, frá 12.september 2014, lögð fram til kynningar.

  9. 9. Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1403072 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lagt fram sem trúnaðarmál, yfirlit yfir rekstur janúar - júlí 2014 og tekju- og launakostnaðaryfirlit janúar - ágúst 2014.

  10. 10. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014

    Mál 1402090 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 47 frá

    12. september 2014, lögð fram til kynningar.

  11. 11. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014

    Mál 1402090 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 48 frá 16. september 2014, lögð fram til kynningar.