Fræðslunefnd, fundur 6
8. október 2014, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, formaður
- Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
- Óskar Þór Guðmundsson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 401 liður 21
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 6 frá 8.október 2014, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 164 liður 7
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 6 frá 8.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar
Mál 1409064 Allur ferill málsins
Farið var yfir áætlanir um rekstur fræðslustofnana 2015 og leitað leiða til að aðlaga þær að fjárheimildum. Töluverður munur er á fjárþörf og fjárhagsramma og munar þar mestu um aukinn launakostnað vegna nýrra kjarasamninga. Þá fjölgar nemendum í leik- og grunnskólum sem kallar á fleiri stöðugildi í skólum. Einnig er þörf á að bæta tölvutengingar í leikskólum og endurnýja tölvur í grunn-, leik- og tónlistarskólum. Rætt var um breytingar á úthlutunarreglum til grunnskóla sem m.a. tengjast breyttum starfsháttum skóla, hagkæmari stærð námshópa og skipulagi á sér- og stuðningskennslu. Nefndin telur óraunhæft að ná þeirri hagræðingu sem fjárhagsramminn kallar á án róttækrar breytinga á þeirri þjónustu sem veitt er og óskar eftir að bæjarráð endurskoði rammann. Nefndin felur fræðslustjóra að vinna að nýjum úthlutunarreglum út frá leiðbeiningum nefndarinnar og leggja drög að reglum fyrir næsta fund.
-
2. Starfsáætlun 2015 - fræðslumál
Mál 1408014 Allur ferill málsins
Farið var yfir drög að starfsáætlun í fræðslumálum fyrir árið 2015.
-
3. Gjaldskrár í fræðslustofnunum
Mál 1410025 Allur ferill málsins
Farið var yfir samanburð á gjaldskrám Fjarðabyggðar í fræðslumálum og nokkurra annarra sveitarfélaga. Fræðslunefnd frestar frekari umræðu um gjaldskrár til næsta fundar.