Bæjarráð, fundur 399
1. október 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 164 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 399, 400 og 401 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 399 frá 1.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar
Mál 1409064 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri, fræðslustjóri og formaður fræðslunefndar. Farið yfir forsendur og áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna fræðslumála.
-
2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundanefndar
Mál 1409062 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri, fræðslustjóri, íþrótta- og tómstundafulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundanefndar. Farið yfir forsendur og áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna íþrótta- og tómstundamála.
-
3. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Mál 1409061 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri, mannvirkjastjóri og formaður eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Farið yfir forsendur og áherslur í fjárhagsáætlun ársins 2015 á framkvæmdasviði.