Hafnarstjórn, fundur 139
21. október 2014, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, varamaður
- Guðrún M.Ó.Steinunnardóttir, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 403 liður 27
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 139 frá 21.október 2014, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 165 liður 9
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 139 frá 21.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Aðalfundur Fiskmarkaður Austurlands 2014
Mál 1408116 Allur ferill málsins
Aðalfundur Fiskmarkaðar Austurlands 2014 verður haldinn fimmtudaginn 23. október 2014. Fulltrúi hafnarstjórnar verður Steinþór Pétursson og Sævar Guðjónsson verðu til vara.
-
2. Beiðni um stuðning við námskeiðshald fyrir leiðsögumenn
Mál 1410098 Allur ferill málsins
Erindi frá Austurbrú ses dags. 14. október 2014 þar sem óskað er eftir stuðningu frá hafnarsjóði Fjarðabyggðar til að kynna námskeið fyrir leiðsögumenn. Óskað er eftir 100 til 150 þ.kr. styrk til að greiða kynningarkostnað vegna dreifibréfs í hús á miðausturlandi.
Hafnarstjórn samþykkti að styrkja verkefnið um 100.000 kr.
-
3. Fjárlög til hafnaframkvæmda og hafnalög
Mál 1410080 Allur ferill málsins
Kynnt erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. október varðandi fjárframlög til hafnamála í samgönguáætlun fyrir árið 2015.
Kynnt.
-
4. Ósk um stuðning við frágang á lóð við hús sveitarinnar.
Mál 1410094 Allur ferill málsins
Erindi frá Björgunarsveitinni Ársól þar sem óskað er eftir stuðningi við frágang lóðar við hús sveitarinnar.
Hafnarstjórn getur ekki orðið við styrkbeiðninni og hafnar erindinu.
-
5. Tillaga að lagfærinu við Norðfjarðarvita
Mál 1410033 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafþóri Eiríkssyni dags. 4. október 2014 þar sem hann vill koma að hjá hafnarstjórn tillögu þess efnis að umhverfi við Norðafjarðarvitann verði lagfært. Hafnarstjórn þakkar fyrir góða ábendingu og vísar henni til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
-
6. Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað
Mál 1311101 Allur ferill málsins
Kynntur fundur með framkvæmdastjóra Fjarðanets þann 14. október 2014 vegna lóðamála. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.
-
7. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
Mál 1409138 Allur ferill málsins
Undirbúningsvinna við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2015 ásamt langtímaáætlun og gjaldskrá. Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá hafnarsjóðs hækki um 3,4%. Einnig samþykkir hafnarstjórn framkvæmdaáætlun fyrir 2015 ásamt langtímaáætlun 2016 til 2018.
Hafnarstjórn mun skoða hvort forsendur áætlunarinnar hafi breyst þegar kemur fram á árið með endurskoðun á framkvæmdaáætluninni i huga. Áætluninni er vísað til bæjarráðs.