Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 403

27. október 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 165 liður 6

    Fundargerðir bæjarráðs, nr. 402 og 403, teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 403 frá 27.október 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2015

    Mál 1410043 Allur ferill málsins

    Í ljósi breytinga í sorphirðumálum á næsta ári samþykkir bæjarráð að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs hækki um 6,25% frá 1.janúar 2015.

  2. 2. Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1410040 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra um þrískipta gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar 2015.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá Hitaveitu Eskifjarðar og Fjarvarmaveitu Norðfjarðar hækki um 3,4% en gjaldskrá Fjarvarmaveitu Reyðarfjarðar hækki um 17%.

    Bæjarráð samþykkir breytingartillögu mannvirkjastjóra frá 17.október sl., þar sem gert er ráð fyrir að gjaldskrár hitaveitu skiptist upp í þrennt, og samþykkir jafnframt breytingar á gjaldskrám hitaveitu sem gildi frá 1.janúar 2015.

  3. 3. Gjaldskrá tjaldsvæða 2015

    Mál 1410044 Allur ferill málsins

    Bæjarráð frestar ákvörðun um gjaldskrá tjaldsvæða 2015 og óskar eftir samanburði frá framkvæmdasviði á gjaldskrám annarra sambærilegra sveitarfélaga.

    Gjaldskrá, eins og hún var samþykkt í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, vísað til umræðu í bæjarstjórn í tengslum við fjárhagsáætlun 2015.

  4. 4. Gjaldskrár í fræðslustofnunum

    Mál 1410025 Allur ferill málsins

    Tillaga um breytingar á gjaldskrám fræðslustofnana er eftirfarandi:

    Gjaldskrá í leikskólum verði óbreytt frá gjaldskrá 2014.

    Gjaldskrá skólamáltíða í grunnskólum lækki um 5% frá gjaldskrá 2014.

    Gjaldskrá í tónlistarskólum hækki um 3,4% frá gjaldskrá 2014.

    Gjaldskrá í heilsdagsskóla hækki um 3,4% frá gjaldskrá 2014.

    Systkinaafsláttur verði tekinn upp milli vistunargjalds í heilsdagsskóla og vistunargjalds í leikskóla. Hugmynd að útfærslu á systkinaafslætti er: Afsláttur í leikskóla óbreyttur, en barni 2 í heilsdagsskóla fylgi 25% afsláttur, barni 3 í heilsdagsskóla fylgi 50% afsláttur og barni 4 í heilsdagsskóla fylgi 100% afsláttur.

    Meirihluti bæjarráðs samþykkir ofangreindar breytingar á gjaldskrám fræðslustofnana. Eydís Ásbjörnsdóttir samþykkir breytingu á gjaldskrám með þeim fyrirvara að heildstæðri vinnu við fjárhagsáætlun er ekki lokið.

  5. 5. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015

    Mál 1409138 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn hefur samþykkt að gjaldskrá hafnarsjóðs hækki um 3,4% frá 1.janúar 2015. Hafnarstjórn hefur einnig samþykkt framkvæmdaáætlun fyrir 2015 ásamt langtímaáætlun 2016 til 2018. Bæjarráð samþykkir gjaldskrá, framkvæmdaáætlun og langtímaáætlun hafnarsjóðs en frekari umræða um fjárfestingaráætlun hafnarsjóðs verður tekin milli umræðna í bæjarstjórn. Áætlunum vísað til tillögu að fjárhagsáætlunargerð 2015.

  6. 6. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar

    Mál 1409064 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins. Fjárheimildum í fræðslumálum vísað til tillögu að fjárhagsáætlunargerð 2015.

  7. 7. Starfsáætlun 2015 - fræðslumál

    Mál 1408014 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sat þennan lið fundarins. Starfsáætlun 2015 í fræðslumálum lögð fram til kynningar. Vísað til tillögu að fjárhagsáætlunargerð 2015.

  8. 8. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundanefndar

    Mál 1409062 Allur ferill málsins

    Fjárheimildum í íþrótta- og tómstundamálum vísað til tillögu að fjárhagsáætlunargerð 2015.

  9. 9. Starfsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundamál

    Mál 1408076 Allur ferill málsins

    Starfsáætlun 2015 í íþrótta- og tómstundamálum lögð fram til kynningar. Vísað til tillögu að fjárhagsáætlunargerð 2015.

  10. 10. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Félagsmálanefnd

    Mál 1409066 Allur ferill málsins

    Fjárheimildum í félagsmálum vísað til tillögu að fjárhagsáætlunargerð 2015.

  11. 11. Starfsáætlun 2015 - félagsmál

    Mál 1408092 Allur ferill málsins

    Starfsáætlun 2015 í félagsmálum lögð fram til kynningar. Vísað til tillögu að fjárhagsáætlunargerð 2015.

  12. 12. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - fasteignagjaldaálagning

    Mál 1410165 Allur ferill málsins

    Fasteignagjaldastofn ársins 2015 breytist ekki mikið milli áranna 2014 og 2015. Matstofn íbúðarhúsnæðis lækkar um 1,7%, stofn atvinnuhúsnæðis hækkar um 12% að meðaltali og matsstofn opinbers húsnæðis hækkar um 3,1%. Er þetta í samræmi við breytingar á matsstofni skv. Þjóðskrá Íslands. Álagningarstofnum ársins 2015 vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  13. 13. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Farið yfir drög að starfsáætlun 2015. Fjárheimildum og starfsáætlunum málaflokka vegna ársins 2015 hefur verið vísað til tillögu að fjárhagsáætlunargerð 2015 og er vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

    Eydís Ásbjörnsdóttir fulltrúi Fjarðalistans samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 til fyrri umræðu í bæjarstjórn með fyrirvara um forgangsröðun, sérstaklega í fræðslumálum. Einnig er mörgum spurningum ósvarað um aðgerðir og framkvæmdaáætlanir.

  14. 14. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 2018

    Mál 1408015 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir framlagða þriggja ára áætlun 2016 - 2018 og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Eydís Ásbjörnsdóttir fulltrúi Fjarðalistans samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 2018 til fyrri umræðu í bæjarstjórn með fyrirvara um forgangsröðun, sérstaklega í fræðslumálum. Einnig er mörgum spurningum ósvarað um aðgerðir og framkvæmdaáætlanir.

  15. 15. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015

    Mál 1409057 Allur ferill málsins

    Sérreglur Fjarðabyggðar vegna byggðakvóta lagðar fram og samþykktar og vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  16. 16. Umsókn um styrk til bæjarráðs vegna Selláturs

    Mál 1409133 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsögn skipulags- og byggingafulltrúa um styrk sbr. reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts. Skipulags- og byggingafulltrúa falið að kanna nánar með framtíðaráform húseigenda um endurbætur á húsinu.

  17. 17. Öldungamót í blaki á Norðfirði 2015

    Mál 1405039 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs um aðkomu sveitarfélagsins að öldungamóti í blaki 2015. Bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar falið að ræða við forsvarsmenn mótsins.

  18. 18. Framlag Fjarðabyggðar til Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 1410049 Allur ferill málsins

    Ákvörðun um framlag til safnsins á fjárhagsáætlun ársins 2015. Bæjarráð beinir því til stjórnar safnsins að leitað verði leiða til auka tekjur safnsins. Erindi verður tekið fyrir milli umræðna um fjárhagsáætlun 2015 í bæjarstjórn.

  19. 19. Viðurkenning Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 1405088 Allur ferill málsins

    Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins, frá 20.október 2014, þar sem kemur fram að Sjóminjasafn Austurlands hafi ekki hlotið viðurkenningu á grundvelli nýrra safnalaga, en unnið er áfram að málinu á vegum ráðuneytisins. Vísað til forstöðumanns Safnastofnunar og stjórnar Sjóminjasafnsins.

  20. 20. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2013 og 2014

    Mál 1301332 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 12.september og 7.október 2014 lagðar fram til kynningar. Vísað til hafnarstjórnar.

  21. 21. Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 10.okt. 2014

    Mál 1409162 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2013, lagður fram til kynningar.

  22. 22. Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2014 - 6.nóvember

    Mál 1410139 Allur ferill málsins

    Ákvörðun um fulltrúa á aðalfund Héraðsskjalasafns Austfirðinga, fimmtudaginn 6.nóvember kl. 14:00 í Löngubúð Djúpavogi, en fundur í menningar- og safnanefnd verður ekki haldinn fyrr en eftir 6.nóvember. Forstöðumaður Safnastofnunar verði fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.

  23. 23. 257.mál til umsagnar frumvarp til laga um sérhæfða þjónustumiðstöð á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu (heildarlög)

    Mál 1410168 Allur ferill málsins

    Frumvarp til laga um sérhæfða þjónustumiðstöð á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu (heildarlög) lagt fram til kynningar. Vísað til félagsmálanefndar.

  24. 24. Íþrótta- og tómstundanefnd - 6

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 6 frá 23.október 2014, lögð fram til kynningar.

  25. 25. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 105

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 105 frá 23.október 2014, lögð fram til kynningar.

  26. 26. Fræðslunefnd - 7

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 7 frá 21.október 2014, lögð fram til kynningar.

  27. 27. Hafnarstjórn - 139

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 139 frá 21.október 2014, lögð fram til kynningar.

  28. 28. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014

    Mál 1401186 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 60 frá 23.október 2014, lögð fram til kynningar.