Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2015
Mál 1410040 Fyrst á dagskrá 20. október 2014, síðast 30. október 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárUmhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 402 liður 12
Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra um gjaldskrár hitaveitu Fjarðabyggðar 2015.
Nefndin hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, tillögu mannvirkjastjóra og vísar tillögunni til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarráðs.
Á fundinum var lögð fram breytingartillaga mannvirkjastjóra frá 17.október sl. þar sem gert er ráð fyrir að gjaldskrár hitaveitu skiptist upp í þrennt.
Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
-
Bæjarráð, fundur 403 liður 2
Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra um þrískipta gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar 2015.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að gjaldskrá Hitaveitu Eskifjarðar og Fjarvarmaveitu Norðfjarðar hækki um 3,4% en gjaldskrá Fjarvarmaveitu Reyðarfjarðar hækki um 17%.
Bæjarráð samþykkir breytingartillögu mannvirkjastjóra frá 17.október sl., þar sem gert er ráð fyrir að gjaldskrár hitaveitu skiptist upp í þrennt, og samþykkir jafnframt breytingar á gjaldskrám hitaveitu sem gildi frá 1.janúar 2015.
-
Bæjarstjórn, fundur 165 liður 5.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 402“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 165 liður 6.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 403“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.