Búnaður fyrir brettaiðkendur
Mál 1411159 Fyrst á dagskrá 28. nóvember 2014, síðast 4. desember 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 408 liður 5
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Íþrótta- og tómstundanefnd fjallaði um bréf frá Hákoni Viðarsyni. Í bréfinu er óskað eftir aðkomu sveitarfélagsins að kaupum á búnaði fyrir brettadeild Skíðafélags Fjarðabyggðar en til að bæta samkeppnisstöðu ungmenna í Fjarðabyggð er mikilvægt að aðstaðan til brettaiðkunar verði bætt.
Íþrótta- og tómstundanefnd vísaði erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2015.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til fjárhagsáætlunargerðar 2015.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við félagið um fjárframlag sem nemur allt að 2.500.000 kr. sem skiptist á næstu fimm árin.
-
Bæjarstjórn, fundur 168 liður 9.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 408“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.