Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Styrking verklegrar kennslu í skólum Fjarðabyggðar

Mál 1304104 Fyrst á dagskrá 25. nóvember 2014, síðast 9. júní 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðslaStyrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Fræðslunefnd, fundur 9 liður 4

    Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra um framgang verkefnisins Verklegt er vitið. Í minnisblaðinu kemur fram að unnið hafi verið eftir áætlun. Meðal annars kemur fram að haldin hafi verið námskeið í eðlis- og efnafræðikennslu, verið sé að kaupa búnað í náttúrufræðistofur og búnað í leikskóla. Einnig er hafin kennsla í vélfræði fyrir elstu nemendur grunnskóla. Fræðslunefnd lýsir ánægju sinni með verkefnið og framgang þess.

  2. Bæjarstjórn, fundur 168 liður 10.4

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 9“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2016

    Fræðslunefnd, fundur 28 liður 5

    Fræðslustjóri greindi frá því að nú væri að ljúka þriggja ára þróunarverkefni í styrkingu verklegra greina sem notið hefur styrks frá Alcoa Foundation. Verkefnið hefur verið mikil stuðningur við verklega kennslu í skólunum. Búnaður hefur verið bættur sem og aðstaða, haldin hafa verið áhugaverð námskeið fyrir kennara og farnar gagnkvæmar heimsóknir milli skóla og Alcoa Fjarðaáls. Árangur sést m.a. á því að nemendum sem fara í verklegt nám að lokunum grunnskóla hefur fjölgað umtalsvert, fleiri verklegar valgreinar eru í boði og hlutfall verklegrar kennslu í raungreinum hefur aukist. Afrakstur verkefnisins lifir áfram í skólunum og nauðsynlegt að halda áfram á sömu braut.

  4. Bæjarstjórn, fundur 202 liður 4.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 28“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is