Almenningssamgöngur - samningar 2014
Mál 1304095 Fyrst á dagskrá 28. nóvember 2014, síðast 2. júní 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Menning og söfnSamgöngur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 408 liður 11
Þennan dagskrárlið sat fjármálastjóri.
Lögð fram drög að samningum um almenningssamgöngur á Austurlandi og skiptingu tekna af farmiðasölu, um akstur framhaldsskólanema í Fjarðabyggð, um akstur íþróttaiðkenda í Fjarðabyggðahöllina, um almenningsakstur milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar á grundvelli sérleyfis nr. F39 og um almenningsakstur milli Norðfjarðar og Egilsstaða á grundvelli sérleyfis nr. F38.
Nefndin samþykkir samningana fyrir sitt leyti og bæjarráð staðfestir þá og felur bæjarstjóra að undirrita samningana.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd skorar á bæjarráð Fjarðabyggðar að skoða kosti og galla þess að almenningssamgöngur á Austurlandi verði settar í byggðasamlag í samstarfi við önnur sveitarfélög á Austurlandi.
Bæjarráð samþykkir að vísa áskorun nefndarinnar um mat á því að setja samgöngur í byggðasamlag til samgöngunefndar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
-
Bæjarstjórn, fundur 168 liður 9.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 408“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2015
Bæjarráð, fundur 430 liður 15
Tilkynning um afgreiðslu Samgöngunefndar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á athugun á kostum og göllum þess að setja almenningssamgöngur á Austurlandi í byggðasamlag. Nefndin telur í ljósi þeirrar óvissu sem nú ríkir um framkvæmd almenningssamgangna á Austurlandi að ekki sé tímabært að taka til umræðu annað rekstrarfyrirkomulag.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.
-
Bæjarstjórn, fundur 181 liður 1.15
Fundargerðin „Bæjarráð - 430“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.