Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 430

1. júní 2015, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 181 liður 1

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Eiður Ragnarsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 1.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum

    Mál 1410164 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat verkefnastjóri atvinnumála.

    Farið yfir vinnu við gerð stefnu Fjarðabyggðar í atvinnumálum.

  2. 2. Uppbyggingarsjóður 2015 - umsóknir

    Mál 1504066 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat verkefnastjóri atvinnumála.

    Kynning á úthlutun styrkja frá Uppbyggingarsjóði Austurlands en Fjarðabyggð fékk úthlutað tveimur styrkjum.

    Um er að ræða styrk til verkefnisins "Stöðvarfjörður - nýtt upphaf minjagripir og listhandverk". Styrkurinn verður nýttur til að bæta við verkefni sem þegar eru í gangi vegna atvinnuþróunar á Stöðvarfirði og treysta grunn þeirra.

    Þá fékkst styrkur til verkefnisins "Hvalstöðin á Svínaskálastekk".

    Vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd.

  3. 3. Fjármál 2015

    Mál 1501010 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál.

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Lagt fram minnisblað fjármálastjóra og endurskoðuð sjóðsstreymisáætlun sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðra framkvæmda í hafnarsjóði.

  4. 4. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015

    Mál 1409138 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál.

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri ásamt framkvæmdastjóra hafna.

    Hafnarstjórn fór yfir stöðu mála á fundi 26. maí sl. þar sem farið var yfir fjárhagsstöðu ársins og horfurnar framundan. Framkvæmdastjóra var falið að leggja vinnuskjal merkt trúnaðarmál vegna málsins fyrir bæjarráð.

    Bæjarráð samþykkir að vísa vinnu við fjárhagsáætlun til frekari umfjöllunar hafnarstjórnar. Fjármálastjóra falið að vinna minnisblað sem lagt verður fyrir hafnarstjórn.

  5. 5. Mat á leigusamningum við Reiti II

    Mál 1302116 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Lögð fram hugmynd fjármálastjóra um lántöku vegna kaupa á Fjarðabyggðarhöllinni af Reitum.

    Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra og felur honum ásamt bæjarstjóra að hefja viðræður á grundvelli tillögu.

  6. 6. Fjarðabyggð til framtíðar

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Rætt um framgang verkefna og framhald þeirra.

  7. 7. Akstur á golfæfingar

    Mál 1505140 Allur ferill málsins

    Komin er fram ósk frá Golfklúbbi Norðfjarðar um að tvisvar í viku, á meðan á golfæfingum stendur hjá börnum og unglingum, keyri áætlunarbíll að golfskálanum og hleypi golfiðkendum út. Einungis er um að ræða ferð frá Norðfirði. Þessi aukakrókur mun seinka áætlun um 5 mínútur.

    Bæjarráð vísar til framkvæmdasviðs hvort hægt sé að koma til móts við ósk klúbbsins með að áætlunarbíll stöðvi við afleggjara golfvallarvegs og Norðfjarðarvegs.

  8. 8. Augnlæknaþjónusta í Fjarðabyggð

    Mál 1505060 Allur ferill málsins

    Svar Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá 19.maí við bréfi Sigurborgar Einarsdóttur frá 7.maí, er varðar augnlæknaþjónustu í Fjarðabyggð.

    Erindið fram lagt og kynnt en bæjarráð leggur áherslu á að nauðsynlegri sérfræðiþjónustu lækna sé sinnt í Fjarðabyggð með fullnægjandi hætti.

  9. 9. Nám á framhaldsstigi í tónlistarskólum

    Mál 1505137 Allur ferill málsins

    Bréf starfshóps skólastjórnenda um nám á framhaldsstigi í tónlist frá 8.maí sl. er varðar athugasemdir vegna vinnu við breytingar á uppbyggingu tónlistarnáms.

    Bæjarráð vísar erindi til fræðslunefndar til nánari skoðunar.

  10. 10. Samningur Fjarðabyggðar, Tónlistarmiðstöðvar og SSA 2015

    Mál 1505154 Allur ferill málsins

    Drög að samningi og viðauka milli Fjarðabyggðar, Tónlistarmiðstöðvar og SSA lögð fram til kynningar. Vísað til menningar- og safnanefndar.

  11. 11. 20 ára afmæli Íslenska Stríðsárasafnsins

    Mál 1505175 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að dagskrá sem forstöðumaður menningar- og safnamála hefur unnið.

    Haldið verður uppá afmælið 28. júní nk. Vísað til menningar- og safnanefndar til yfirferðar.

  12. 12. Lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði

    Mál 1505169 Allur ferill málsins

    Bréf Varasjóðs húsnæðismála frá 21.maí sl. er varðar lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði.

    Bæjarstjóra falið að skoða stöðu Varasjóðs húsnæðismála.

  13. 13. Styrkumsókn vegna uppsetningar Hljóðkerfaleigunnar á Jólafrið 2015

    Mál 1504056 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Hljóðkerfaleigu Austurlands þar sem óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu til uppsetningar á Jólafrið 2015, tónleikum sem haldnir verða í íþróttahúsinu í Neskaupstað 12. desember nk. Bæjarráð samþykkir að veita afnot af húsinu og að styrkja uppsetningu á Jólafrið 2015 sem nemur húsaleigu. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  14. 14. 740 - Deiliskipulag Kirkjuból, hesthúsa og búfjársvæði

    Mál 1306026 Allur ferill málsins

    Umræða um skipulagsvinnu á Kirkjubóli og notkun á landi.

    Bæjarstjóri kynnir bréfasamskipti við ábúendur Kirkjubóls, Norðfirði, ásamt fundargerð frá fundi með þeim og lögmönnum aðila. Fram kemur að flest það sem ábúendur höfðu athugasemdir við snýr að atriðum sem tekið verður á í skipulagsferli því sem framundan er. Ákveðið að bíða með frekari meðferð málsins á grundvelli ábúðarlaga þar til skipulagsferill verður lengra kominn.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  15. 15. Almenningssamgöngur - samningar 2014

    Mál 1304095 Allur ferill málsins

    Tilkynning um afgreiðslu Samgöngunefndar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi á athugun á kostum og göllum þess að setja almenningssamgöngur á Austurlandi í byggðasamlag. Nefndin telur í ljósi þeirrar óvissu sem nú ríkir um framkvæmd almenningssamgangna á Austurlandi að ekki sé tímabært að taka til umræðu annað rekstrarfyrirkomulag.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.

  16. 16. Hafnarstjórn - 151

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 151 frá 26.maí 2015, lögð fram til kynningar.

  17. 17. Íþrótta- og tómstundanefnd - 12

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 12 frá 27.maí 2015, lögð fram til kynningar.