Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Nám á framhaldsstigi í tónlistarskólum

Mál 1505137 Fyrst á dagskrá 1. júní 2015, síðast 18. júní 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 430 liður 9

    Bréf starfshóps skólastjórnenda um nám á framhaldsstigi í tónlist frá 8.maí sl. er varðar athugasemdir vegna vinnu við breytingar á uppbyggingu tónlistarnáms.

    Bæjarráð vísar erindi til fræðslunefndar til nánari skoðunar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 181 liður 1.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 430“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Fræðslunefnd, fundur 17 liður 1

    Vísað er frá bæjarráði til nánari skoðunar fræðslunefndar bréfi starfshóps skólastjórnenda um nám á framhaldsstigi í tónlist frá 8.maí sl. Í bréfi skólastjóranna, sem koma víðs vegar af landinu, eru gerðar alvarlegar athugasemdir við hugmyndir sem mennta-og menningarmálaráðherra hefur viðrað um breytingar á fjármögnun og skipulagi tónlistarnáms á framhaldsstigi. Fram kemur í bréfinu að hugmyndir ráðherra séu eftirfarandi: Greiðslum frá ríki til sveitarfélaga vegna framhaldsnáms í tónlistarskólum í samræmi við samkomulag frá 2011 verði hætt. Sveitarfélög munu þar með reka sína tónlistarskóla án fjárframlags frá ríkinu. Þess i stað verði fjármagni veitt til eins tónlistarskóla í Reykjavík vegna framhaldsnáms í tónlist. Sá skóli verður þar með eini tónlistarskólinn í landinu sem mun bjóða upp á tónlistarnám á framhaldsstigi með sérstökum samningi við ríkið. Sett verði fjármagn í tónlistarnám að loknu framhaldsprófi, svokallað 4. hæfnisþrep. Skólastjórarnir óttast m.a. að fjármagn til tónlistar verði skorið niður, aðgengi og valfrelsi nemenda að tónlistarnámi minnki og jafnrétti til náms með tilliti til búsetu skerðist.

    Lesa alla bókunina (134 orð til viðbótar)

    Einnig liggur fyrir tölvupóstur frá lögfræðingi Sambands íslenskra sveitarfélaga til framkvæmdastjóra sveitarfélaga þar sem fram kemur að sambandið hafi skipað tvo fulltrúa að beiðni ráðherra í samráðshóp, þau Guðjón Bragason, sviðsstjóra lögfræði og velferðarsviðs sambandsins, og Soffíu Vagnsdóttur, fræðslustjóra á Akureyri. Í skipunarbréfi starfshópsins er ekki nefnd ein tiltekin leið sem starfshópnum er ætlað að fjalla um, umfram aðra kosti, þótt þær hugmyndir sem lýst er í erindinu frá skólastjórnendum hafi vissulega verið viðraðar á fundum mennta- og menningarmálaráðherra með forsvarsmönnum sambandsins. Sambandið leggur áherslu á að haft verði samráð við þá aðila sem best þekkja til um tilhögun tónlistarnáms. Fræðslunefnd treystir á að starfshópurinn vinni faglega að verkefninu og verði í góðu sambandi við bæði tónlistarskóla og sveitarstjórnarfólk. Nefndin telur mikilvægt að tryggt verði sem best jafnrétti til náms með tilliti tll búsetu.

  4. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 17.1

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 17“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is