Bæjarstjórn, fundur 182
18. júní 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Eiður Ragnarsson, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varamaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
- Kristín Gestsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, varamaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Fjármögnunarleigusamningar við Reiti II
Mál 1302116 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði og lagði fram tillögu vegna dagskrárliðar.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson.
Með vísan til minnisblaða fjármálastjóra frá 16. mars 2015 um nýtingu kaupréttar og fjármögnunar kaupa á Fjarðabyggðarhöllinni af Reitum II ehf. og 10. júní 2015 um fjármögnun kaupa á fjármögnunarleigusamningi samþykkir bæjarstjórn Fjarðabyggðar eftirfarandi:
Bæjarstjórn samþykkir að Fjarðabyggð leysi til sín Fjarðabyggðarhöllina af Reitum II ehf. með vísan til ákvæða fjármögnunarleigusamnings, að upphæð 761 millj. kr.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð allt að 400.000.000 kr., í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna endurkaup eigna sveitarfélagsins frá Reitum II ehf., sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Páli Björgvin Guðmundssyni kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess, f.h. Fjarðabyggðar, að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir einnig að taka lán hjá Íslandsbanka hf. að fjárhæð 360.000.000 kr. í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Er lánið tekið til að fjármagna endurkaup eigna sveitarfélagsins frá Reitum II ehf. Jafnframt er Páli Björgvin Guðmundssyni kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess, f.h. Fjarðabyggðar, að undirrita lánssamning við Íslandsbanka hf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir einnig þrjá viðauka um skilmálabreytingar á eldri lánasamninga Fjarðabyggðar við Íslandsbanka hf. sem liggja fyrir fundinum en þeir eru frá 1.október 2013 og 10.júní 2011. Jafnframt er Páli Björgvin Guðmundssyni kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess, f.h. Fjarðabyggðar, að undirrita viðaukana við Íslandsbanka hf. sbr. framangreint.
-
2. Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 3
Mál 1506026 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri mælti fyrir framlögðum viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 vegna kaupa á Fjarðabyggðarhöllinni af Reitum II ehf. og fjármögnun kaupanna með lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga og Íslandsbanka.
Bæjarráð hefur samþykkt viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
Um er að ræða kaup á fjármögnunarleigusamning því eignin sem slík er færð í rekstrar- og efnahagsreikning Eignasjóðs.
Við kaup Fjarðabyggðar á ofangreindri eign breytist eignahlið Eignasjóðs þannig að mismunur upphæðar kaupverðsréttar og uppreiknaðrar fjármögnunarleiguskuldar færist til auka við verðmæti eignarinnar í efnahagsreikningi, leiguskuldir lækka um 692 milljónir króna en langtímaskuldir við lánastofnanir hækka um 760 milljónir króna. Jafnframt fellur til þinglýsingar- og samningskostnaður vegna kaupsamnings um eigninna og er hann áætlaður um 5 milljónir króna.
Því er lagt til að eftirfarandi breyting verði samþykkt á fjárhagsáætlun Eignasjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar fyrir árið 2015:
a) Leiguskuldir í efnahagsreikningi lækki um kr. 692.000.000 á árinu 2015 og afborganir leiguskulda ársins í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.
b) Skuldir við lánastofnanir í efnahagsreikningi hækki um kr. 760.000.000 á árinu 2015 með lánum frá Lánasjóði sveitarfélaga og Íslandsbanka og tekin ný langtímalán í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.
c) Fjárfestingar Eignasjóðs í fasteignum hækki um kr. 68.000.000 í sjóðsstreymisyfirliti á árinu 2015 og upphæð fastafjármuna um sömu upphæð.
d) Rekstrarkostnaður í Eignasjóði hækki um kr. 5.000.000.
Hér með er því lagt til að rekstrarkostnaður Fjarðabyggðahallarinnar í deild 31-603, hækki um kr. 5.000.000 og verði samtals kr. -39.589.288. Jafnframt er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé Eignasjóðs Fjarðabyggðar. Eigið fé Eignasjóðs mun því lækka um kr. 5.000.000 til samræmis við ofangreint og handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um sömu upphæð og verða 405.087.000 í árslok 2015.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2105 með 9 atkvæðum.
-
3. Kaup á endurskoðunarþjónustu Fjarðabyggðar
Mál 1505092 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar gerði grein fyrir framlögðum tilboðum í endurskoðunarþjónustu Fjarðabyggðar árin 2015 - 2019 samkvæmt verðfyrirspurn, ásamt verðfyrirspurnargögnum og samantekt fjármálastjóra um tilboðin.
Tvö tilboð bárust frá Deloitte og KPMG endurskoðun. Bæjarráð hefur samþykkt að gengið verði til samninga við KPMG endurskoðun.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að gengið verði til samninga við KPMG endurskoðun um endurskoðunarþjónustu Fjarðabyggðar og stofnana árin 2015 til 2019.
-
4. Námsstyrkir - endurskoðun
Mál 1506059 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir framlögðum endurskoðuðum reglum um námsstyrki til starfsmanna Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Reglurnar taka sérstakt tillit til starfsmanna sem leggja stund á diplómanám eða B.Ed. nám í leikskólafræðum.
Bæjarráð samþykkti á fundi 8.júní sl., reglurnar með þeirri breytingu að tímar til starfsmanna í námi í leikskólafræðum í staðlotum verði auknir umfram tillöguna.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir reglurnar með 9 atkvæðum.
-
5. Tillaga að sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar árið 2015
Mál 1501079 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarráð hafa samþykkt að bæta íbúð að Starmýri 17 í Neskaupstað á sölulista fasteigna.
Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson og Elvar Jónsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að bæta íbúð að Starmýri 17 á sölulista fasteigna.
-
6. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2015
Mál 1506090 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi máli úr hlaði. Umsókn til Ofanflóðasjóðs um lán úr sjóðnum vegna kostnaðarhluta Fjarðabyggðar við ofanflóðavarnir á árinu 2014. Bæjarráð hefur samþykkt umsóknina fyrir sitt leyti.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að óska eftir 46,4 m. kr. láni hjá Ofanflóðasjóði vegna kostnaðarhluta sveitarfélagsins í framkvæmdum til varnar snjóflóðum og skriðuföllum á Norðfirði, Fáskrúðsfirði og Eskifirði, vegna ársins 2014. Bæjarstjóra falið að ganga frá og undirrita lánaskjöl.
-
7. Kosning bæjarráðs kjörtímabilið 2014-2018
Mál 1406064 Allur ferill málsins
Tillaga bæjarstjórnar um skipan aðalmanna í bæjarráði til eins árs sbr. samþykktir um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Aðalmenn: Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður og Eydís Ásbjörnsdóttir.
Varamenn skipa sæti eftir 39. gr. samþykkta sveitarfélagsins.
Enginn tók til máls.
Skipan bæjarráðs samþykkt með 9 atkvæðum.
-
8. Kosning forseta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2014-2018
Mál 1406062 Allur ferill málsins
Tillaga bæjarstjórnar um kosningu forseta bæjarstjórnar.
Jón Björn Hákonarson er tilnefndur sem forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir kjör Jóns Björns Hákonarsonar sem forseta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar til eins árs með 9 atkvæðum.
-
9. Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2014-2018
Mál 1406063 Allur ferill málsins
Tillaga bæjarstjórnar um kosningu 1. og 2.varaforseta bæjarstjórnar. Tilnefndir eru sem 1. varaforseti Jens
Garðar Helgason og 2. varaforseti Elvar Jónsson.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir kjör Jens Garðars Helgasonar og Elvars Jónssonar til eins árs með 9 atkvæðum .
-
10. Kjör 2015 í nefndir og ráð til eins árs
Mál 1506111 Allur ferill málsins
Kosning fulltrúa og varamanna á aðalfund SSA sem haldinn verður 2. og 3.október á Djúpavogi.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að eftirfarandi einstaklingar verði fulltrúar Fjarðabyggðar á aðalfundi SSA.
Aðalmenn:
Jón Björn Hákonarson (B), Pálína Margeirsdóttir (B), Svanhvít Yngvadóttir (B), Hulda Sigrún Guðmundsdóttir (B), Jens Garðar Helgason (D), Valdimar O. Hermannsson (D), Kristín Gestsdóttir (D), Dýrunn Pála Skaftadóttir (D), Elvar Jónsson (L), Eydís Ásbjörnsdóttir (L), Esther Ösp Gunnarsdóttir (L), Einar Már Sigurðarson (L), Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir (L), Páll Björgvin Guðmundsson.
Varamenn:
Guðjón Björn Guðbjartsson (B), Tinna Hrönn Smáradóttir (B), Þuríður Lillý Sigurðardóttir (B), Einar Björnsson (B), Sævar Guðjónsson (D), Borghildur Stefánsdóttir (D), Birkir Hauksson (D), Ragnar Sigurðarson (D), Sigurbergur Ingi Jóhannsson (D), Ævar Ármannsson (L), Marsibil Erlendsdóttir (L), Stefán Már Guðmundsson (L), Sigríður Margrét Guðjónsdóttir (L), Þórdís Jóna Guðmundsdóttir.
-
11. Sumarleyfi bæjarstjórnar 2015
Mál 1506112 Allur ferill málsins
Tillaga forseta bæjarstjórnar. Lagt er til að bæjarstjórn taki sumarfrí í júlí og ágúst sbr. 7. gr. samþykkta Fjarðabyggðar og komi saman að nýju eftir sumarfrí, fimmtudaginn 13. ágúst 2015. Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi stendur.
Enginn tók til máls.
Tillaga samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.
-
12. Bæjarráð - 431
Fundargerðir bæjarráðs nr. 431 og 432 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð bæjarráð, nr. 431 frá 8.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 12.1 735 Leirukrókur 18 - umsókn um lóð1505093
- 12.2 740 Bakkabakki - umsókn um lóð utanum smáhýsi1410010
- 12.3 Átak til nauðsynlegra framkvæmda á ferðamannastöðum1404089
- 12.4 Beiðni um viðveru í Valhöll1506014
- 12.5 Breyttur opnunartími í íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar á laugardögum1503147
- 12.6 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 12.7 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20151409138
- 12.8 Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðar1501148
- 12.9 Málefni Upplýsingamiðstöðvar Austurlands1411035
- 12.10 Námsstyrkir - endurskoðun1506059
- 12.11 Ofanflóðavarnir Eskifirði. Verkhönnun árfarvega1403026
- 12.12 Sóknaráætlun Austurlands 2015 - 2019 - beiðni um umsögn1506017
- 12.13 Stofnun félags um franska daga á Fáskrúðsfirði1506042
- 12.14 Launakjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna1503101
- 12.15 Vegna skerðingar sumarlauna í tengslum við verkfall FT1506024
- 12.16 Yfirborðsmerkingar gatna í Fjarðabyggð 20151505046
- 12.17 Viðtalstímar bæjarfulltrúa 20151503121
- 12.18 Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð1310127
- 12.19 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20151502053
- 12.20 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20151501273
- 12.21 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1191505016F
- 12.22 Menningar- og safnanefnd - 151506001F
-
13. Bæjarráð - 432
Fundargerðir bæjarráðs nr. 431 og 432 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráð, nr. 432 frá 15.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 13.1 Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL1503049
- 13.2 Fjármál 20151501010
- 13.3 Fjármögnunarleigusamningar við Reiti II1302116
- 13.4 Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 31506026
- 13.5 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 13.6 Aðalfundur fulltrúaráðs EBÍ - 23.september1506074
- 13.7 Kaup á endurskoðunarþjónustu Fjarðabyggðar1505092
- 13.8 Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 20151506090
- 13.9 Beiðni um niðurlagningu varasjóðs Sparisjóðs Fáskrúðsfjarðar,Fjarðabyggð1506054
- 13.10 Grjótvarnir í Fjarðabyggð1503195
- 13.11 Norðfjarðarflugvöllur viðhald og uppbygging1203023
- 13.12 Tillaga að sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar árið 20151501079
- 13.13 Vegna skerðingar sumarlauna í tengslum við verkfall FT1506024
- 13.14 Umsókn um stöðuleyfi - Strandgata 8; 7401411156
- 13.15 Hluthafafundur Sparisjóðs Austurlands hf 15.júní 20151506055
- 13.16 Menningarhátíðin Pólar 20151506027
- 13.17 Aðalfundur SSA 20151503140
- 13.18 Hvatning um gróðursetningu í tilefni afmælis Vigdísar Finnbogadóttur1506079
- 13.19 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1201506005F
- 13.20 Hafnarstjórn - 1521506004F
- 13.21 Fræðslunefnd - 171506003F
-
14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 119
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 119 og 120 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Eiður Ragnarsson og Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 119 frá 1.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
-
15. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 120
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 119 og 120 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tók Eiður Ragnarsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 120 frá 8.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
-
16. Hafnarstjórn - 152
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 152 frá 9.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 16.1 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20151501066
- 16.2 Hafnafundur Hafnasambands Íslands haldinn 28.ágúst 20151505177
- 16.3 Umsókn um leyfi fyrir ofanjarðar gasolíugeymi og afgreiðsludælu á bryggju á Stöðvarfirði1505124
- 16.4 Sjávarútvegsskóli Austurlands 20151505171
- 16.5 Aðstöðuhús við smábátahafnir1503148
- 16.6 Norðfjörður - tunna á enda grjótgarðs1502047
- 16.7 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20151409138
- 16.8 Grjótvarnir í Fjarðabyggð1503195
- 16.9 Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað1311101
- 16.10 Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð1310127
-
17. Fræðslunefnd - 17
Til máls tóku Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 17 frá 9.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 17.1 Nám á framhaldsstigi í tónlistarskólum1505137
- 17.2 Vímuefnanotkun ungs fólks í Fjarðabyggð 8.-10.bekkur 20151506040
- 17.3 Hagir og líðan ungs fólks í Fjarðabyggð 5.-7.bekkur 20151506039
- 17.4 Athugun á skólamáltíðum í Fjarðabyggð1506060
-
18. Menningar- og safnanefnd - 15
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 15 frá 3.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 18.1 20 ára afmæli Íslenska Stríðsárasafnsins
- 18.2 Uppbyggingarsjóður 2015 - umsóknir
- 18.3 Samningur Fjarðabyggðar, Tónlistarmiðstöðvar og SSA 2015
- 18.4 Staða Tónlistarmiðstövar Austurlands
-
19. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
Mál 1501273 Allur ferill málsins
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 53 frá 2.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.