Vímuefnanotkun ungs fólks í Fjarðabyggð 8.-10.bekkur 2015
Mál 1506040 Fyrst á dagskrá 9. júní 2015, síðast 18. júní 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Fræðslunefnd, fundur 17 liður 2
Lögð er fram til kynningar skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um vímuefnanotkun ungs fólks í 8.-10.bekk í Fjarðabyggð. Skýrslan sýnir niðurstöðu úr könnun frá í febrúar 2015 sem gerð var í öllum 8.-10. bekkjum landsins. Ánægjulegt er til þess að vita að ungmennum í Fjarðabyggð og á landinu almennt hugnast ekki vímuefnanotkun og neysla er mjög lítil og fer minnkandi. Í Fjarðabyggð hafa reykingar enn minnkað og eru líkt og notkun á ólöglegum vímuefnum hverfandi og fyrir neðan landsmeðaltal. Nef- og munntóbaksnotkun er lítil en hefur þó lítillega vaxið og er ofan við landsmeðaltal sem er áhyggjuefni og full ástæða til efla forvarnir gegn þeirri notkun svo og gegn áfengisneyslu, en þar hefur notkun vaxið lítillega frá síðustu könnun og ungmenni í Fjarðabyggð eru þar við landsmeðaltal. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að kynna skýrsluna fyrir skólastjórum og Fjarðaforeldrum. Skýrslan verður gerð aðgengileg á heimasíðu Fjarðabyggðar og stefnt að kynningu með haustinu.
-
Bæjarstjórn, fundur 182 liður 17.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 17“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.