Hafnarstjórn, fundur 152
9. júní 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Eiður Ragnarsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 432 liður 20
Fundargerð hafnarstjórnar frá 9. júní sl. lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 182 liður 16
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 152 frá 9.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015
Mál 1501066 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 375 dags. 22. maí 2015 lögð fram til kynningar.
-
2. Hafnafundur Hafnasambands Íslands haldinn 28.ágúst 2015
Mál 1505177 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 26. maí 2015 þar sem tilkynnt er að Hafnafundur verði haldinn í Hafnarfirði þann 28. ágúst 2015.
Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á fundinn.
-
3. Umsókn um leyfi fyrir ofanjarðar gasolíugeymi og afgreiðsludælu á bryggju á Stöðvarfirði
Mál 1505124 Allur ferill málsins
Á fundi hafnarstjórnar 26. maí s.l. var framkvæmdastjóra falið að ræða við svæðisstjóra Olís vegna óska um að setja upp olíugeymi fyrir smábáta á Stöðvarfirði. Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað vegna málsins.
Hafnarstjórn samþykkti að heimila Olís að setja upp olíugeymi við enda þeirra tanka sem fyrir eru við höfnina í samræmi við minnisblað.
-
4. Sjávarútvegsskóli Austurlands 2015
Mál 1505171 Allur ferill málsins
Erindi frá Sigurði Stein Einarssyni f.h. Síldarvinnslunnar dags. 28. maí 2015 þar sem óskað er eftir stuðningi Fjarðabyggðarhafna við að bjóða upp á Sjávarútvegsskóla Austurlands sumarið 2015 upp á 500.000 kr. Hafnarstjórn samþykkti styrkbeiðnina
-
5. Aðstöðuhús við smábátahafnir
Mál 1503148 Allur ferill málsins
Fyrir liggja útboðsgögn vegna þjónustuhúss fyrir smábátahöfnina á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að bjóðaverkið út. Hafnarstjórn samþykkir að boðin verði út smíði þjónustuhúss á Stöðvarfirði.
-
6. Norðfjörður - tunna á enda grjótgarðs
Mál 1502047 Allur ferill málsins
Útboðsgögn vegna tunnu á enda varnargarðs við innsiglingu í Norðfjarðarhöfn eru að verða tilbúin, en gert var ráð fyrir þessari framkvæmd í framkvæmdaáætlun ársins.
Hafnarstjórn samþykkir að verkið verði boðið út þegar útboðsgögn verða tilbúin.
-
7. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
Mál 1409138 Allur ferill málsins
Í kjölfar fundar 26, maí sl. um fjárhagsstöðu ársins og horfurnar framunda og umfjöllunar bæjarráðs um málið liggur fyrir minnisblað frá bæjarráði sem vísað er til hafnarstjórnar til umfjöllunar. Hafnarstjórn samþykkir minnisblaðið en með fyrirvara um endurskoðun við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.
-
8. Grjótvarnir í Fjarðabyggð
Mál 1503195 Allur ferill málsins
Áframhald umræðu frá síðasta fundi hafnarstjórnar þann 26. maí 2015 vegna grjótvarna í Fjarðabyggð, þegar málinu var frestað til næsta fundar. Fyrir fundinum lá vinnuskjal um grjótvarnir í Fjarðabyggð og forgangsröðun þeirra sem gerir ráð fyrir áætluðum kostnaði upp á um 25,5 millj.kr. á árinu 2015. Hafnarstjórn samþykkir vinnuskjalið og vísar því til staðfestingar hjá bæjarráði.
-
9. Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað
Mál 1311101 Allur ferill málsins
Erindi frá Fjarðaneti dags. 21. maí 2015. Erindið var kynnt en afgreiðslu þess frestað á fundi hafnarstjórnar þann 26. maí sl. Fyrir fundinum liggur minnisblað framkvæmdastjóra vegna málsins. Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi minnisblað og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.
-
10. Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð
Mál 1310127 Allur ferill málsins
Tekið fyrir erindi frá bæjarráði frá fundi ráðsins þann 8. júní sl. þar sem fjalla er um framlengingu verkefnastjóra atvinnu- og þróunarmála í Fjarðabyggð og visað var til hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir málið fyrir sitt leiti.