Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 151

26. maí 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, varamaður
  • Árni Þórhallur Helgason, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 430 liður 16

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 151 frá 26.maí 2015, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 181 liður 2

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 26.maí 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundur Cruise Iceland haldinn í Reykjavík 8. maí 2015

    Mál 1504137 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ársskýrsla frá aðalfundi Cruise Icelands sem haldinn var í Reykjavík 8. maí sl.

  2. 2. Umsókn um leyfi fyrir ofanjarðar gasolíugeymi og afgreiðsludælu á bryggju á Stöðvarfirði

    Mál 1505124 Allur ferill málsins

    Erindi frá Olíuverlsun Íslands sem barst 19. maí 2015 þar sem óskað er eftir leyfi til að setja upp 9.600 lítra ofanjarðargeymi og afgreiðsludælu fyrir báta á Stöðvarfirði. Framkvæmdastjóra falið að ræða við svæðisstjóra Olís

  3. 3. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015

    Mál 1409138 Allur ferill málsins

    Í samræmi við bókun við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2015 var farið yfir stöðu mála það sem af er ári og horfurnar framundan. Framkvæmdastjóra falið að legga vinnuskjal vegna málsins til bæjarráðs. Trúnaðarmál.

  4. 4. Grjótvarnir í Fjarðabyggð

    Mál 1503195 Allur ferill málsins

    Tekið til umfjöllunar staða grjótvarna í Fjarðabyggð. Fyrir fundinum liggur minnisblað frá umhverfisstjóra ásamt vinnulista til skoðunar á fundinum. Hafnarstjórn frestar málinu og tekur það til frekari umræðu á næsta fundi.

  5. 5. Norðfjörður - umhverfisfrágangur við smábátahöfn

    Mál 1412034 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillögur að umhverfisfrágangi við smábátahöfnina á Norðfirði til yfirferðar. Nokkra athugasemdir gerðar sem komið verður á framfæri við hönnuð. Gert var ráð fyrir að vinna hluta af frágangi á svæðinu á fjárhagsárinu. Samþykkt var að klára malbikunarframkvæmdir, sá í svæðið og ganga frá festum ásamt rörum fyrir rafmagn.

  6. 6. Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað

    Mál 1311101 Allur ferill málsins

    Bréf frá Fjarðaneti dags. 21. maí 2015 þar sem sótt er um lóð á nýrri fyllingu austan fiskimjölsverksmiðjunnar Síldarvinnslunnar á Norðfirði. Erindið kynnt og því frestað en framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.