Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Atvinnu- og þróunarstjóri í Fjarðabyggð

Mál 1310127 Fyrst á dagskrá 4. júlí 2014, síðast 18. ágúst 2016. 10 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.

Í hnotskurn

Málið snýst um starf á sviði atvinnumála hjá Fjarðabyggð, sem fyrst var ráðið í til eins árs og síðar framlengt meðan skipurit sveitarfélagsins var endurskoðað13. Bæjarráð samþykkti í júlí 2016 að ráða í starf atvinnu- og þróunarstjóra og bæjarstjórn staðfesti það í ágúst 2016910.

Staðan

Ráðning atvinnu- og þróunarstjóra frá 1. september 2016 hefur verið samþykkt í bæjarráði og staðfest í bæjarstjórn910.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 390 liður 9

    Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Bæjarráð samþykkti tillögu bæjarstjóra um að ráða Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur sem verkefnastjóra í atvinnumálum til eins árs, en fulltrúi Fjarðalistans sat hjá og bókaði að æskilegt væri að slík störf væru auglýst, þótt Fjarðalistinn styddi stefnumótun í hafnsækinni starfsemi

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram tillaga og greinargerð bæjarstjóra vegna ráðningar í starf verkefnastjóra í atvinnumálum í Fjarðasbyggð. Bæjarráð samþykkir að ráða Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur í starfið til eins árs.

    Lesa alla bókunina (153 orð til viðbótar)

    Greinargerð: Á undanförnum misserum hefur verið rætt um nauðsyn þess innan stjórnkerfis Fjarðabyggðar að ráða verkefnastjóra atvinnumála í Fjarðabyggð m.a. til þess vinna að stefnumótun og fylgja eftir þróun á uppbyggingu miðstöðvar fyrir olíuleit og þjónustu við slíkan iðnað. Þá þarf að vinna áfram að skipulagsmálum hvað þessi mál snertir, tengslauppbyggingu, mótun samninga o.fl. Þá er nauðsynlegt að kortleggja innviði sveitarfélagsins enn frerkar og hvaða þarfir þarf að leysa í þeim efnum við frekari uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu.

    Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við Ástu Kristínu.

    Fulltrúi Fjarðalistan situr hjá við ráðningu og bókar eftirfarandi: "Fulltrúi Fjarðalistans telur eðlilegt að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sjái um ráðningu verkefnastjóra í atvinnumálum í Fjarðabyggð, enda ákvörðun þessi hluti af meirihlutasáttmála flokkanna. Undirritaðri finnst æskilegt að stöður sem þessar hjá sveitarfélaginu séu auglýstar til umsóknar. Undirrituð vill taka fram að Fjarðalistinn styður að öðru leyti að farið sé í stefnumótunarvinnu við hafnsækna starfsemí í Fjarðabyggð."

  2. Bæjarstjórn, fundur 160 liður 9.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 390“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2015

    Bæjarráð, fundur 431 liður 18

    Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Bæjarráð samþykkti að framlengja ráðningarsamning verkefnastjóra um fjóra mánuði vegna endurskoðunar á skipuriti Fjarðabyggðar, með því að starfið yrði síðan auglýst, og vísaði málinu til hafnarstjórnar

    Endursögn gervigreindar

    Farið yfir verkefni vegna atvinnu- og þróunarmála í Fjarðabyggð og vinnu verkefnastjóra.

    Bæjarráð samþykkir að framlengja ráðningarsamning verkefnastjóra um fjóra mánuði í ljósi þess að unnið er að endurskoðun skipurits Fjarðabyggðar. Mun þá starfið verða auglýst í ljósi niðurstöðu endurskoðunarinnar.

    Jafnframt er erindi vísað til hafnarstjórnar.

  4. Hafnarstjórn, fundur 152 liður 10

    Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Hafnarstjórn samþykkti framlenginguna fyrir sitt leyti

    Endursögn gervigreindar

    Tekið fyrir erindi frá bæjarráði frá fundi ráðsins þann 8. júní sl. þar sem fjalla er um framlengingu verkefnastjóra atvinnu- og þróunarmála í Fjarðabyggð og visað var til hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir málið fyrir sitt leiti.

  5. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 12.18

    Fundargerðin „Bæjarráð - 431“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  6. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 16.10

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 152“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  7. Hafnarstjórn, fundur 156 liður 7

    Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Hafnarstjórn fékk til kynningar að endurskoðun skipurits tæki lengri tíma og að bæjarráð teldi starfið mikilvægt og tímabært að auglýsa það

    Endursögn gervigreindar

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í hafnarstjórn.

    Stjórnkerfisnefnd vinnur enn að endurskoðun skipurits og ljóst að það verkefni mun taka einhvern tíma til viðbótar. Bæjarráð, sem starfar einnig sem stjórnkerfisnefnd, er sammála um að starf á vettvangi atvinnuþróunar og tengdra verkefna sé mjög mikilvægt fyrir sveitarfélagið þó starfið kunni að þróast frekar. Þá hafi núverandi fyrirkomulag gengið vel og því sé tímabært að eyða óvissu um framtíð starfsins og auglýsa það.

  8. Bæjarstjórn, fundur 190 liður 4.7

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 156“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  9. 2016

    Bæjarráð, fundur 480 liður 5

    Bæjarráð samþykkti tillögu bæjarstjóra um að ráða Helgu Guðrúnu Jónasdóttur sem atvinnu- og þróunarstjóra frá og með 1. september 2016

    Endursögn gervigreindar

    Framlögð tillaga bæjarstjóra að ráðningu atvinnu- og þróunarstjóra Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að ráða Helgu Guðrúnu Jónasdóttur sem atvinnu- og þróunarstjóra frá og með 1. september nk.

  10. Bæjarstjórn, fundur 204 liður 2.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 480“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is