Bæjarráð, fundur 431
8. júní 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Elvar Jónsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 182 liður 12
Fundargerðir bæjarráðs nr. 431 og 432 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson.
Fundargerð bæjarráð, nr. 431 frá 8.júní 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 735 Leirukrókur 18 - umsókn um lóð
Mál 1505093 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Lögð fram lóðarumsókn Guðmundar Elíassonar, f.h. Fjarðabyggðar dagsett 12. maí 2015, þar sem sótt er um lóðina Leirukrók 18 á Eskifirði undir byggingu móttökustöðvar fyrir sorp.
Nefndin samþykkti úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti og vísaði endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
2. 740 Bakkabakki - umsókn um lóð utanum smáhýsi
Mál 1410010 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Lagt fram bréf Brodda Þorsteinssonar, f.h. Mílu ehf. dagsett 5. september 2014, þar sem óskað er eftir lóð umhverfis hús fyrirtækisins sem stendur við tjaldstæðið á Bökkunum á Norðfirði.
Nefndin samþykkti úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti og vísaði endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
-
3. Átak til nauðsynlegra framkvæmda á ferðamannastöðum
Mál 1404089 Allur ferill málsins
Farið var yfir stöðu mála og útlagðan kostnað.
Rætt um framkvæmdir sumarsins og kostnað við þær auk þess sem farið var yfir hvaða framkvæmdir eru í forgangi á næstu misserum.
-
4. Beiðni um viðveru í Valhöll
Mál 1506014 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat markaðs- og upplýsingafulltrúi.
Framlögð beiðni handverkshóps um afnot af Valhöll vegna sölu á handverki.
Bæjarráð samþykkir að veita Handverkshópi Fjarðabyggðar afnot af Valhöll á Eskifirði þegar húsið er ekki í notkun og fagnar því að aðstaðan nýtist öllu handverksfólki í Fjarðabyggð.
Vísað til markaðs- og upplýsingafulltrúa til úrvinnslu.
-
5. Breyttur opnunartími í íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar á laugardögum
Mál 1503147 Allur ferill málsins
Sú hugmynd hefur verið til skoðunar að færa laugardagsopnun íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði fram um eina klukkustund. Sem sagt að opnun verði frá 09:00 til 13:00 en ekki frá 10:00 til 14:00 eins og verið hefur. Íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur rætt við starfsmenn og þau íþróttafélög sem hafa haft afnot af íþróttamiðstöðinni á laugardögum. Þessir aðilar hafa ekki sett sig upp á móti hugmyndinni. Þá var einnig framkvæmd skoðanakönnun á meðal notenda en niðurstöður hennar gefa til kynna að meirihluti notenda vill breyttan opnunartíma. Að lokum hefur verið litið á tölfræði úr skráningarkerfi íþróttamiðstöðvarinnar sem sýnir að stærstur hluti þeirra gesta sem mætir á laugardögum er að mæta fljótlega eftir opnun. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að laugardagsopnun verði færð fram frá og með 8. ágúst 2015. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt tillöguna samhljóða. Bæjarráð samþykkir breytinguna.
-
6. Fjarðabyggð til framtíðar
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Umræða um stöðu og framhald verkefnisins.
-
7. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015
Mál 1409138 Allur ferill málsins
Trúnaðarmál.
Þennan lið dagskrár sátu fjármálastjóri og framkvæmdastjóri hafna.
Lögð fram drög að minnisblaði sem fjármálastjóra og framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna var falið að vinna á bæjarráðsfundi þann 1. júní sl. til að leggja fyrir hafnarstjórn og bæjarráð.
Vísað til hafnarstjórnar.
-
8. Markaðs- og kynningarmál Fjarðabyggðar
Mál 1501148 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskár sat markaðs- og kynningarfulltrúi.
Farið yfir stöðu og verkefni framundan í markaðs- og kynningarmálum sveitarfélagsins.
-
9. Málefni Upplýsingamiðstöðvar Austurlands
Mál 1411035 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskár sat markaðs- og kynningarfulltrúi.
Málefni svæðisupplýsingamiðstöðvar á Egilsstöðum rædd en reknar eru tvær miðstöðvar sem eru að sinna sama hlutverki.
-
10. Námsstyrkir - endurskoðun
Mál 1506059 Allur ferill málsins
Framlagðar endurskoðaðar reglur um námsstyrki til starfsmanna Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Reglurnar taka sérstakt tillit til starfsmanna sem leggja stund á diplómanám eða B.Ed. nám í leikskólafræðum.
Bæjarráð samþykkir reglurnar með þeirri breytingu að tímar til starfsmanna í námi í leikskólafræðum í staðlotum verði auknir umfram tillöguna. Jafnframt samþykkir bæjarráð að auknu fjármagni verði veitt af liðnum 21690, óráðstafað, sem nemur 1.000.000 kr. til námsstyrkja. Reglum vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
11. Ofanflóðavarnir Eskifirði. Verkhönnun árfarvega
Mál 1403026 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Lagður fram samningur vegna undirbúnings og framkvæmda við ofanflóðavarnir á Eskifirði.
Nefndin samþykkti samninginn fyrir sitt leyti og vísaði honum til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir samninginn.
Jafnframt óskar bæjarráð eftir að fá fulltrúa Ofanflóðasjóðs og hönnuða á fund bæjarráðs til að fara yfir framkvæmdir við ofanflóðavarnir í árfarvegum á Eskifirði.
-
12. Sóknaráætlun Austurlands 2015 - 2019 - beiðni um umsögn
Mál 1506017 Allur ferill málsins
Í nýjum samningi um sóknaráætlun Austurlands 2015 - 2019 sem undirritaður var í febrúar 2015 milli atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, er kveðið á um gerð nýrrar sóknaráætlunar landshlutans fyrir sama tímabil. Þar kemur fram að sóknaráætlunin sé þróunaráætlun landshlutans og feli í sér stöðumat landshlutans, framtíðarsýn og markmið til að ná fram þeirri framtíðarsýn.
Óskað er eftir umsögn/athugasemdum um meðfylgjandi drög fyrir 15. júní nk. Bæjarráð felur bæjarstjóra að yfirfara tillögur að sóknaráætlun og senda athugasemdir.
-
13. Stofnun félags um franska daga á Fáskrúðsfirði
Mál 1506042 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað fjármálastjóra um fjármál Franskra daga á Fáskrúðsfirði og stofnun sérstaks félags sem heldur utanum rekstur hátiðarinnar og fjárhagsmálefni líkt og aðrar bæjarhátíðir.
Bæjarráð samþykkir niðurstöðu minnisblaðsins.
-
14. Launakjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna
Mál 1503101 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna vegna kjara hlutastarfandi sjúkraflutningamanna hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu í samstarfi við lögmann og svara efni bréfa sem fyrir liggja.
Vegna óvissu um kostnað vegna sjúkraflutninga samþykkir bæjarráð að málinu verði jafnframt vísað til vinnu við gerð samnings um sjúkraflutninga.
-
15. Vegna skerðingar sumarlauna í tengslum við verkfall FT
Mál 1506024 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá skólastjórum tónlistarskóla í Fjarðabyggð þar sem lagt er til að laun tónlistarkennara vegna verkfalls verði ekki skert og þeim boðið að vinna skerðingu af sér.
Bæjarráð frestar málinu. Bæjarritara falið að afla gagna.
-
16. Yfirborðsmerkingar gatna í Fjarðabyggð 2015
Mál 1505046 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Lögð fram tilboð sem bárust í yfirborðsmerkingar gatna í Fjarðabyggð ásamt útboðsgögnum. Alls bárust 4 tilboð en eitt þeirra er ekki gilt vegna formgalla.
Nefndin lagði til að lægsta gilda tilboði verði tekið og vísaði erindi til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að taka lægsta tilboði.
-
17. Viðtalstímar bæjarfulltrúa 2015
Mál 1503121 Allur ferill málsins
Framlögð fundargerð frá viðtalstíma á Norðfirði.
Málefnum vísað til starfsmanna, sviða og nefnda eftir því sem við á.
-
18. Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð
Mál 1310127 Allur ferill málsins
Farið yfir verkefni vegna atvinnu- og þróunarmála í Fjarðabyggð og vinnu verkefnastjóra.
Bæjarráð samþykkir að framlengja ráðningarsamning verkefnastjóra um fjóra mánuði í ljósi þess að unnið er að endurskoðun skipurits Fjarðabyggðar. Mun þá starfið verða auglýst í ljósi niðurstöðu endurskoðunarinnar.
Jafnframt er erindi vísað til hafnarstjórnar.
-
19. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2015
Mál 1502053 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð 828. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
-
20. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2015
Mál 1501273 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefnd nr. 53 frá 2. júní sl. lögð fram til kynningar.
-
21. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 119
Fundargerð eigna-, skiupulags- og umhverfisnefndar frá 1. júní sl. lögð fram til kynningar.
-
22. Menningar- og safnanefnd - 15
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 3. júní sl. lögð fram til kynningar.