Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Breyttur opnunartími í íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar á laugardögum

Mál 1503147 Fyrst á dagskrá 8. júní 2015, síðast 18. júní 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: ReyðarfjörðurÍþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 431 liður 5

    Sú hugmynd hefur verið til skoðunar að færa laugardagsopnun íþróttamiðstöðvarinnar á Reyðarfirði fram um eina klukkustund. Sem sagt að opnun verði frá 09:00 til 13:00 en ekki frá 10:00 til 14:00 eins og verið hefur. Íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur rætt við starfsmenn og þau íþróttafélög sem hafa haft afnot af íþróttamiðstöðinni á laugardögum. Þessir aðilar hafa ekki sett sig upp á móti hugmyndinni. Þá var einnig framkvæmd skoðanakönnun á meðal notenda en niðurstöður hennar gefa til kynna að meirihluti notenda vill breyttan opnunartíma. Að lokum hefur verið litið á tölfræði úr skráningarkerfi íþróttamiðstöðvarinnar sem sýnir að stærstur hluti þeirra gesta sem mætir á laugardögum er að mæta fljótlega eftir opnun. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að laugardagsopnun verði færð fram frá og með 8. ágúst 2015. Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt tillöguna samhljóða. Bæjarráð samþykkir breytinguna.

  2. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 12.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 431“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is