Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Námsstyrkir - endurskoðun

Mál 1506059 Fyrst á dagskrá 8. júní 2015, síðast 18. júní 2015. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Styrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 431 liður 10

    Framlagðar endurskoðaðar reglur um námsstyrki til starfsmanna Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Reglurnar taka sérstakt tillit til starfsmanna sem leggja stund á diplómanám eða B.Ed. nám í leikskólafræðum.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar með þeirri breytingu að tímar til starfsmanna í námi í leikskólafræðum í staðlotum verði auknir umfram tillöguna. Jafnframt samþykkir bæjarráð að auknu fjármagni verði veitt af liðnum 21690, óráðstafað, sem nemur 1.000.000 kr. til námsstyrkja. Reglum vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 4

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir framlögðum endurskoðuðum reglum um námsstyrki til starfsmanna Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Reglurnar taka sérstakt tillit til starfsmanna sem leggja stund á diplómanám eða B.Ed. nám í leikskólafræðum.

    Bæjarráð samþykkti á fundi 8.júní sl., reglurnar með þeirri breytingu að tímar til starfsmanna í námi í leikskólafræðum í staðlotum verði auknir umfram tillöguna.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir reglurnar með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 12.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 431“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is