Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 3

Mál 1506026 Fyrst á dagskrá 12. júní 2015, síðast 18. júní 2015. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 432 liður 4

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Framlagður viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 vegna kaupa á Fjarðabyggðahöllinni af Reitum II ehf. og fjármögnun kaupanna með lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga og Íslandsbanka.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 2

    Bæjarstjóri mælti fyrir framlögðum viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 vegna kaupa á Fjarðabyggðarhöllinni af Reitum II ehf. og fjármögnun kaupanna með lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga og Íslandsbanka.

    Bæjarráð hefur samþykkt viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Um er að ræða kaup á fjármögnunarleigusamning því eignin sem slík er færð í rekstrar- og efnahagsreikning Eignasjóðs.

    Lesa alla bókunina (236 orð til viðbótar)

    Við kaup Fjarðabyggðar á ofangreindri eign breytist eignahlið Eignasjóðs þannig að mismunur upphæðar kaupverðsréttar og uppreiknaðrar fjármögnunarleiguskuldar færist til auka við verðmæti eignarinnar í efnahagsreikningi, leiguskuldir lækka um 692 milljónir króna en langtímaskuldir við lánastofnanir hækka um 760 milljónir króna. Jafnframt fellur til þinglýsingar- og samningskostnaður vegna kaupsamnings um eigninna og er hann áætlaður um 5 milljónir króna.

    Því er lagt til að eftirfarandi breyting verði samþykkt á fjárhagsáætlun Eignasjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar fyrir árið 2015:

    a) Leiguskuldir í efnahagsreikningi lækki um kr. 692.000.000 á árinu 2015 og afborganir leiguskulda ársins í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.

    b) Skuldir við lánastofnanir í efnahagsreikningi hækki um kr. 760.000.000 á árinu 2015 með lánum frá Lánasjóði sveitarfélaga og Íslandsbanka og tekin ný langtímalán í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.

    c) Fjárfestingar Eignasjóðs í fasteignum hækki um kr. 68.000.000 í sjóðsstreymisyfirliti á árinu 2015 og upphæð fastafjármuna um sömu upphæð.

    d) Rekstrarkostnaður í Eignasjóði hækki um kr. 5.000.000.

    Hér með er því lagt til að rekstrarkostnaður Fjarðabyggðahallarinnar í deild 31-603, hækki um kr. 5.000.000 og verði samtals kr. -39.589.288. Jafnframt er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé Eignasjóðs Fjarðabyggðar. Eigið fé Eignasjóðs mun því lækka um kr. 5.000.000 til samræmis við ofangreint og handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um sömu upphæð og verða 405.087.000 í árslok 2015.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2105 með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 13.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 432“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is