Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Hagir og líðan ungs fólks í Fjarðabyggð 5.-7.bekkur 2015

Mál 1506039 Fyrst á dagskrá 9. júní 2015, síðast 18. júní 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Fræðslunefnd, fundur 17 liður 3

    Lögð er fram til kynningar skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um líðan og hagi ungs fólks í Fjarðabyggð. Skýrslan sýnir niðurstöðu úr könnun frá í febrúar 2015 sem gerð var í öllum 5.-7. bekkjum landsins. Spurt var um eftirfarandi þætti: Samband við foreldra og fjölskyldu, vini og vinkonur, almenna líðan nemenda í 5., 6. og 7. bekk, stríðni, nám og skóla og þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Helstu niðurstöður eru: Tími með foreldrum hefur aukist frá síðustu könnun og samband við kennara er gott. Nemendur virðast vinafærri og stríðni hefur aukist hjá strákum og nemendur upplifa í auknum mæli að þeir séu skildir útundan. Ánægja með námið hefur aukist og frekar að nemendur telji það of létt en of erfitt. Strákum þykir námið leiðinlegra en stelpum en stelpum líður ver í kennslustundum en strákum. Líðan í frímínútum er góð. Um fjórðungur nemenda upplifir ekki mikið hrós í skólanum og það er svipað og meðaltalið yfir landið. Reiðiköstum hefur fækkað, stelpur eiga erfiðara með svefn og gráta auðveldar en strákar. Nemendur í tónlist eru mun fleiri en gengur og gerist á landinu, en íþróttaástundun svipuð og meðaltal á landinu. Strákar eru meira í tölvuleikjum og u.þ.b. 20% þeirra nota meira en 4 tíma á dag í tölvuleiki. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að kynna skýrsluna fyrir skólastjórum og Fjarðaforeldrum. Skýrslan verður gerð aðgengileg á heimasíðu Fjarðabyggðar og stefnt að kynningu með haustinu.

  2. Bæjarstjórn, fundur 182 liður 17.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 17“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is