Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

740 - Deiliskipulag Kirkjuból, hesthúsa og búfjársvæði

Mál 1306026 Fyrst á dagskrá 1. júní 2015, síðast 15. desember 2016. 16 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Skipulag

Í hnotskurn

Málið snýst um deiliskipulag fyrir hesthúsa- og búfjársvæði á landi Kirkjubóls í Norðfirði, en sveitarfélagið á jörðina12. Bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagið með 9 atkvæðum 15. desember 201614.

Staðan

Bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagið 15. desember 2016 og skal málsmeðferð vera í samræmi við 42. gr. skipulagslaga14.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna. Leiðin er löng, dragðu hana til hliðar.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 430 liður 14

    Bæjarstjóri kynnti bréfasamskipti við ábúendur Kirkjubóls og fundargerð frá fundi með þeim og lögmönnum aðila, ákveðið var að bíða með frekari meðferð á grundvelli ábúðarlaga þar til skipulagsferlið væri lengra komið og málinu var vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

    Endursögn gervigreindar

    Umræða um skipulagsvinnu á Kirkjubóli og notkun á landi.

    Bæjarstjóri kynnir bréfasamskipti við ábúendur Kirkjubóls, Norðfirði, ásamt fundargerð frá fundi með þeim og lögmönnum aðila. Fram kemur að flest það sem ábúendur höfðu athugasemdir við snýr að atriðum sem tekið verður á í skipulagsferli því sem framundan er. Ákveðið að bíða með frekari meðferð málsins á grundvelli ábúðarlaga þar til skipulagsferill verður lengra kominn.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 181 liður 4

    Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum tillögu nefndarinnar um að breyta Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 þannig að reitur 05 stækki til vesturs svo fyrirhuguð frístundabúskaparbyggð rúmist innan hans.

    Endursögn gervigreindar

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi aðalskipulagsbreytingu úr hlaði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á fundi 1. júní sl., að halda áfram með skipulagsferlið og að leitað verði leiða til að koma til móts við ábendingar ábúenda í þeirri vinnu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að breyta Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 þannig að reitur 05 stækki til vestur svo fyrirhuguð frístundabúskabsbyggð rúmist innan reitsins.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu nefndarinnar og hafin verði vinna við að breyta gildandi aðalskipulagi samkvæmt hefðbundnu ferli

  3. Bæjarstjórn, fundur 181 liður 1.14

    Fundargerðin „Bæjarráð - 430“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 144 liður 7

    Lagðar voru fram tillögur að nýjum vegtengingum við Norðfjarðarveg og nefndin samþykkti að vinna áfram með tillögu um aðkomu í gegnum hesthúsa- og búfjársvæðið og kynna hana forsvarsmönnum Hestamannafélagsins Blæs.

    Endursögn gervigreindar

    Lagðar fram tillögur að nýjum vegtengingum við Norðfjarðarveg.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að vinna áfram með tillögu sem gerir ráð fyrir aðkomu í gegnum hesthúsa og búfjársvæði. Tilagan verði kynnt forsvarsmönnum Hestamannafélagsins Blæs.

  5. Bæjarstjórn, fundur 200 liður 7.7

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 144“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  6. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 147 liður 5

    Lögð var fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi fyrir um 20 ha svæði með fimmtán hest- og búfjárhúsum, reiðhöll, skeiðvelli og fleiru, og nefndin samþykkti að kynna hana íbúum og hagsmunaaðilum á opnum fundi.

    Endursögn gervigreindar

    Lögð fram til kynningar tillaga að deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæði ásamt greinagerð dagsett 13. júní 2016. Skipulagssvæðið er um 20 ha að stærð og afmarkast af Merkjalæk, Norðfjarðarvegi og Norðfjarðará. Tillagan gerir ráð fyrir fimmtán hest- og búfjárhúsum sem standa munu við Kirkjubólseyri. Einnig er gert ráð fyrir reiðhöll, skeiðvelli, hólfi, gerðum og athafnarsvæðum innan skipulagsmarka.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að deiliskipulagstillagan ásamt greinagerð verði kynnt íbúum og hagsmunaðilum á opnum fundi fyrir næsta fund nefndarinnar.

  7. Bæjarstjórn, fundur 203 liður 2.5

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 147“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  8. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 149 liður 2

    Nefndin samþykkti fyrir sitt leyti að tillagan yrði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga og vísaði endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.

    Endursögn gervigreindar

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæði, skipulagsuppdráttur og greinargerð, dagsett 13. júní 2016, til auglýsingar.

    Málsmeðferð verði í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

    Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  9. Bæjarráð, fundur 482 liður 7

    Bæjarráð samþykkti í umboði bæjarstjórnar tillöguna að deiliskipulagi og að hún yrði auglýst.

    Endursögn gervigreindar

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, tillögu að deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæði, skipulagsuppdráttur og greinargerð, dagsett 13. júní 2016, til auglýsingar. Málsmeðferð verði í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

    Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir tillögu að deiliskipulagi Kirkjubóls og að hún verði auglýst.

  10. Bæjarstjórn, fundur 204 liður 4.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 482“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  11. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 162 liður 13

    Fram kom að auglýsingartíma væri lokið og að ein athugasemd hefði borist, og var hún lögð fram til kynningar.

    Endursögn gervigreindar

    Auglýsingartími er liðinn. Ein athugasemd barst. Athugasemd lögð fram til kynningar.

  12. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 163 liður 8

    Nefndin fjallaði um athugasemd frá lögmanni ábúenda Kirkjubóls og umsögn skipulags- og byggingafulltrúa, taldi ekki unnt að verða við mótmælum ábúenda og mælti með að bæjarstjórn samþykkti tillöguna án breytinga.

    Endursögn gervigreindar

    Auglýsingartími er liðinn. Ein athugasemd barst frá ábúendum Kirkjubóls. Tillaga að deiliskipulagi var auglýst frá og með 14. október 2016 til og með 25. nóvember 2016. Athugasemdarfrestur var til sama tíma.

    Lesa alla bókunina (328 orð til viðbótar)

    Athugasemd hefur borist frá lögmanni ábúenda að Kirkjubóli í Norðfjarðarsveit, Ólafíu Einarsdóttur og Axels Jónssonar, dagsett. 23. nóvember 2016. Áður höfðu borist athugasemdir frá sömu aðilum sem tengdust þessu máli, sjá bréf dags. 28. júlí 2016 og 25. nóvember 2015. Þá höfðu áður verið samskipti milli sveitarfélagsins og ábúenda Kirkjubóls á grundvelli ábúðarsambands þeirra, en sveitarfélagið er eigandi jarðarinnar Kirkjubóls, sjá bréf sveitarfélagsins dags. 6. mars 2015 og bréf lögmanns ábúenda 18. mars 2015 og fundargerð frá fundi aðila þann 29. apríl 2015. Þá sendu ábúendur sjálfir bréf vegna málsins dags. 20. júlí 2016.

    Fjallað er um athugasemdir ábúenda að Kirkjubóli. Farið er yfir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa, dagsett 2. desember 2016 og fjallað um hverja athugasemd fyrir sig.

    Fyrir liggur að eigi síðar en 1998 var ákveðið að byggja upp aðstöðu fyrir hestamenn á Norðfirði á því svæði sem hér um ræðir og gengur tillaga deiliskipulagi m.a. út á að stækka það svæði um 11,6 ha. til að mæta þörfum þeirra sem nú nýta svæðið og skapa svigrúm fyrir frekari þróun og vöxt hestaíþróttarinnar. Eftir að hafa skoðað athugasemdir ábúenda og þeirra sjónarmið um áhrif deiliskipulagsins á búskap þeirra og þess sem fram kom á fundi með ábúendum 29. apríl 2015 um raunveruleg áhrif, þá telur nefndin að ekki sé gengið lengra í tillögu að deiliskipulagi en þörf er á til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að með því.

    Af athugasemdum ábúenda verður ráðið að lagst er gegn gildistöku deiliskipulagsins í heild sinni, en ekki eru gerðar sérstakar kröfur um breytingar á því. Fram hefur komið að áður en tillagan var sett fram hafi verið fundað með ábúendum og í framhaldi af því leitast við að taka tillit til þeirra sjónarmiða, að því marki sem slíkt var talið unnt.

    Með vísan til þessa og áðurnefnds minnisblaðs er það afstaða nefndarinnar að ekki sé unnt að verða við mótmælum ábúenda. Mælir nefndin með því að bæjarstjórn samþykki tillögu að deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæðis án breytinga.

  13. Bæjarráð, fundur 501 liður 17.13

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 162“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  14. Bæjarstjórn, fundur 213 liður 13

    Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum deiliskipulagið, ásamt skipulagsuppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dagsettum 19. ágúst 2016.

    Endursögn gervigreindar

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Ein athugasemd barst frá ábúendum Kirkjubóls.

    Að teknu tilliti til athugasemda ábúenda og þeirra sjónarmiða um deiliskipulagið þá telur bæjarstjórn að ekki sé gengið lengra en þörf er á til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum deiliskipulag Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæði, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 19. ágúst 2016. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.

  15. Bæjarstjórn, fundur 213 liður 3.13

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 162“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  16. Bæjarstjórn, fundur 213 liður 4.8

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 163“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is