NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 149
21. júlí 2016, kl. 09:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, varaformaður
- Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 482 liður 11
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 149 frá 21.júlí 2016, samþykkt í umboði bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. 740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirð
Mál 1510155 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 13. júní 2016. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
2. 740 - Deiliskipulag Kirkjuból, hesthúsa og búfjársvæði
Mál 1306026 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæði, skipulagsuppdráttur og greinargerð, dagsett 13. júní 2016, til auglýsingar.
Málsmeðferð verði í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
3. 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda
Mál 1502042 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar ódagsett bréf Sjóminjasafns Austurlands.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leitað verði álits eiganda Strandgötu 88, 94, 98a og 98b á hugmyndum um staðsetningu Gömlu-búðar og Jensenshúss utan við Strandgötu 98b. Tillagan verði tekin fyrir að nýju þegar umsögn hefur borist.
-
4. Umsókn um lóðir að Fagradalsbraut 10 og 12 fyrir hesthús með reiðaðstöðu
Mál 1607073 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Stefáns Hrafnkelssonar, dagsett 18. júlí 2016, þar sem sótt er um lóðirnar við Fagradalsbraut 10 og 12 á Reyðarfirð til að byggja hesthús. Fyrirhugaða notkun er í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðunum að Fagradalsbraut 8 og 10 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
5. 730 Heiðarvegur 13 - endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 1605045 Allur ferill málsins
Lagður fram tölvupóstur Sigríðar Helgu Aðalsteinsdóttur, dagsettur 10 maí 2016, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hennar að Heiðarvegi 13 á Reyðarfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
-
6. 735 - Leirubakki 7 - Umsókn um nýbyggingu sjódælustöðvar
Mál 1607026 Allur ferill málsins
Lögð fram ódagsett byggingarleyfisumsókn Andra Martins Sigurðssonar fh. Eskju hf þar sem sótt er um leyfi til byggja 163,4 m2 og 922,7 m3 sjódælustöð að Leirubakka 7 á Eskifirði. Aðalhönnuður er Gunnar Larsson hjá Mannvit. Byggingarstjóri er Pálmi Benediktsson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
7. 730 - Hæðargerði 14 - Umsókn um breytta notkun húsnæðis
Mál 1607027 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Svavars V. Valtýssonar, dagsett 11. júlí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun fasteignar hans að Hæðargerði 14 úr íbúð í gistihús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina. Grenndarkynning nái til Hæðargerðis 12 og 14.
-
8. 730 Vallargerði 7 - umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun
Mál 1607089 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Marleen Önnu Meirlaen fh. Bakkagerðis ehf, dagsett 18. júlí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun fasteignar fyrirtækisins að Vallargerði 7 úr íbúð í gistihús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að grenndarkynna umsóknina. Grenndarkynning nái til Vallargerðis 1, 3, 8, 10, 12, 14, 15 og 17.
-
9. 750 Skólavegur 12 -Byggingarleyfi- sólpallur og skjólveggur
Mál 1606082 Allur ferill málsins
Grenndarkynningu, vegna byggingarleyfisumsóknar Heimis Hjálmarssonar, dagsett 13. júní 2016, þar sem sótt var um leyfi til að byggja pall við hús hans að Skólavegi 12 á Fáskrúðsfirð með 1,4 m hárri skjólgirðingu á austur, vestur og suðurhlið, er lokið.
Athugasemd barst frá eiganda Skólavegar 14. Lagt fram bréf KRST Lögmanna, dagsett 30. júní 2016. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa vegna athugasemda, dagsett 18. júlí 2016.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að athugasemdir lóðarhafa Skólavegar 14 séu ekki þess eðlis að hafna beri byggingarleyfisumsókn lóðarhafa Skólavegar 12.
Endanlegri afgreiðslu vegna grenndarkynningar er vísað til bæjarstjórnar.
-
10. 730 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir sólpall að Stekkjarbrekku 5 Reyðarfirði
Mál 1607007 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ragnars Sigurðssonar, dagsett 4. júlí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að byggja pall og 1,4 m háa skjólgirðingu við hús hans að Stekkjarbrekku 5 á Reyðarfirði. Samþykki nágranna liggur fyrir
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
11. 740 Nesgata 32 - byggingarleyfi, skráning tveggja íbúða, br. stærð lóðar
Mál 1511122 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að lóðarblaði Nesgötu 32 á Norðfirði vegna endurnýjunar á lóðarleigusamningi og eignaskiptayfirlýsingar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
-
12. 735 - Strandgata 86b - Beiðni um breytingar á húsnæði Sjósportsklúbbs Eskifjarðar
Mál 1607066 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Kristins Þórs Jónassonar fh. Sjósportsklúbbs Austurlands, dagsett 18. júlí 2016 þar sem sótt er um leyfi breyta útliti og innra skipulagi hússins að Strandgötu 86b á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
13. 730 - Kollaleira 3 - Umsókn um leyfi til að rífa húsið
Mál 1607062 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðmundar Pálssonar, dagsett í júlí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að rífa hús hans að Kollaleiru 3 á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar Íslands og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar önnur tilskilin gögn liggja fyrir.
-
14. 730 - Kollaleira 3 - Umsókn um leyfi til að endurbyggja húsið
Mál 1607063 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðmundar Pálssonar, dagsett í júlí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja húsið að Kollaleiru 3 á Reyðarfirði í sem upprunalegasta útliti. Húsið verður
151,8 m2 og 387,7 m3. Aðalhönnuður er Gunnar Larsson hjá Mannvit. Byggingarstjóri er Andri Martin Sigurðsson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar Íslands og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar önnur tilskilin gögn liggja fyrir.
-
15. Landsskipulagsstefna 2015 - 2026
Mál 1606116 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 16. júní 2016, þar sem farið er yfir viðfángsefni Landsskipulagsstefnu 2015-2026.
-
16. Skipulagning og þróun verndarsvæða í byggð
Mál 1607014 Allur ferill málsins
Erindi Minjastofnunar Íslands er varðar styrki vegna þróunar verndarsvæða í byggð. Vísað til kynningar frá bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggignarfulltrúa að skoða að senda inn umsókn vegna útbæjar Eskifjarðar.
-
17. Styrkvegir 2016
Mál 1604150 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Vegagerðarinnar vegna úthlutunar til styrkvega 2016.
-
18. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands árið 2016
Mál 1602074 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 130. fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
-
19. Verkáætlun Stapa er varðar neysluvatn, varmadælur og jarðhita fyrri hluta árs 2016
Mál 1607111 Allur ferill málsins
Framlögð verkáætlun Stapa er varðar neysluvatn, varmadælur og jarðhita fyrri hluta árs 2016.
Lagt er til að á þessu ári verði unnið í málefnum vatnsveitunnar á Eskifirði og Fáskrúðsfirði og hitaveitunnar á Eskifirði. á árinu 2017 verði skoðaðar þær fjarvarmaborholur sem hafa verið boraðar á Norðfirði og Stöðvarfirði með nýtingu á þeim í huga.
-
20. Afgreiðslur byggingafulltrúa - 73
Samþykkt