Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

730 - Kollaleira 3 - Umsókn um leyfi til að endurbyggja húsið

Mál 1607063 Á dagskrá 21. júlí 2016. 1 færsla í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 149 liður 14

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðmundar Pálssonar, dagsett í júlí 2016, þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja húsið að Kollaleiru 3 á Reyðarfirði í sem upprunalegasta útliti. Húsið verður

    151,8 m2 og 387,7 m3. Aðalhönnuður er Gunnar Larsson hjá Mannvit. Byggingarstjóri er Andri Martin Sigurðsson.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar Íslands og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar önnur tilskilin gögn liggja fyrir.