Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Templarinn - hlutverk hússins

Mál 1410174 Fyrst á dagskrá 3. nóvember 2014, síðast 4. desember 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 404 liður 6

    Bréf Templarasamtakanna á Fáskrúðsfirði, frá 27.október, þar sem óskað er eftir að samtökin hafi eftirlit og afnot af húsinu "Templarinn" á Fáskrúðsfirði, þar til Fjarðabyggð hefur fundið því framtíðarhlutverk. Bæjarráð tekur jákvætt í beiðnina og vísar máli til mannvirkjastjóra með beiðni um tillögu að framtíðaráætlun hússins. Einnig vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd.

  2. Bæjarstjórn, fundur 166 liður 1.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 404“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 408 liður 29

    Framlagt erindi frá Þorvaldi Davíð Kristjánssyni er varðar hugmyndir um framtíð Templarans á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við hollvini hússins, hafa samband við bréfritara og forma samning á grunni reglna um uppgerð gamalla húsa í eigu sveitarfélagsins vegna endurgerðar Templarans.

  4. Bæjarstjórn, fundur 168 liður 9.29

    Fundargerðin „Bæjarráð - 408“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is