Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Fjárhagsáætlun 2014 - viðauki 4

Mál 1402122 Á dagskrá 20. febrúar 2014. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2014

    Bæjarstjórn, fundur 150 liður 12

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðauka úr hlaði. Viðauki nr. 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2014 fjallar um viðhaldskostnað í Tækjamiðstöð.

    a) Lagt er til að ráðast verði í viðgerð á snjótroðara í Oddsskarði sbr mál nr. 1402112. Gerð verði breyting á rekstrarkostnaði Tækjamiðstöðvar á árinu 2014 fyrir deild 101 Snjótroðari PB-300 þannig að viðhald ársins hækki um kr. 7.700.000 og verði samtals kr. 9.760.000.

    Lesa alla bókunina (121 orð til viðbótar)

    b) Lagt er til að keyptur verði nýr bíll til ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk sbr mál nr. 1402111. Í fjárhagsáætlun ársins 2014 er gert ráð fyrir 10 milljónum króna til kaupa á nýjum bíl. Samkvæmt fyrirliggjandi tilboðum kostar slíkur bíll 15 milljónir króna tilbúinn og með viðeigandi búnaði uppsettum. Gerð verði breyting á fjárfestingum Tækjamiðstöðvar á árinu 2014 þannig að eignfærð fjárfesting ársins 2014 hækki um kr. 5.000.000 og verði samtals kr. 26.500.000.

    Fjármögnun fjárfestingar og aukins rekstrarkostnaðar verði með eigin fé Tækjamiðstöðvarinnar og skuld hennar á viðskiptareikningi mun hækka sem því nemur við aðalsjóð en handbært fé Aðalsjóðs lækkar um sömu upphæð og verða áætlað kr. 404.954.000 í árslok 2014.

    Enginn tók til máls:

    Viðauki 4 samþykktur með 9 atkvæðum.