Bæjarstjórn, fundur 151
6. mars 2014, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Guðmundur Þorgrímsson, aðalmaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Stefán Már Guðmundsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 376
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Sævar Guðjónsson, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Stefán Már Guðmundsson.
Fram lögð bókun Fjarðalistans vegna liðar 1.13.
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans taka undir og ítreka innihald bókunar Eydísar Ásbjörnsdóttur á bæjarráðsfundi 3. mars s.l. Bókunin er fyrst og fremst gagnrýni á að nú fyrst skuli vinnuhópur um byggingu nýs leikskóla skipaður en það hefði átt að gera þegar unnið var að gerð deiliskipulags svæðisins á Neseyri sem nú er í auglýsingaferli. Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir og Stefán Már Guðmundsson (sign)
Fundargerð bæjarráðs frá 3. mars að undanskildum lið 2 staðfest með 9 atkvæðum.
-
2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 87
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Sævar Guðjónsson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 24. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
-
3. Atvinnu- og menningarnefnd - 55
Til máls tóku: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Stefán Már Guðmundsson.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 26. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
-
4. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
Mál 1401186 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 51 frá 25. febrúar tekin til afgreiðslu.
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson.
Fundargerð félagsmálanefndar staðfest með 9 atkvæðum.