Bæjarráð - 376
Mál 1402016F Á dagskrá 6. mars 2014. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarstjórn, fundur 151 liður 1
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Sævar Guðjónsson, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Stefán Már Guðmundsson.
Fram lögð bókun Fjarðalistans vegna liðar 1.13.
Bæjarfulltrúar Fjarðalistans taka undir og ítreka innihald bókunar Eydísar Ásbjörnsdóttur á bæjarráðsfundi 3. mars s.l. Bókunin er fyrst og fremst gagnrýni á að nú fyrst skuli vinnuhópur um byggingu nýs leikskóla skipaður en það hefði átt að gera þegar unnið var að gerð deiliskipulags svæðisins á Neseyri sem nú er í auglýsingaferli. Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir og Stefán Már Guðmundsson (sign)
Fundargerð bæjarráðs frá 3. mars að undanskildum lið 2 staðfest með 9 atkvæðum.