Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 4
Mál 1310073 Fyrst á dagskrá 8. október 2013, síðast 17. október 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 359 liður 4
Minnisblað fjármálastjóra frá 8.október 2013 vegna viðhaldsframkvæmda í Breiðabliki, Mýrargötu 18, í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykkir viðaukan fyrir sitt leyti og vísar honum til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.
Viðaukinn fjallar um viðhald húsa í málaflokknum Félagslegar íbúðir sem hækka um 2.000.000 kr og viðskiptareikningur Félagslegra íbúða við aðalsjóð hækki um sömu upphæð. Jafnframt lækkar handbært fé samstæðu Fjarðabyggðar um sömu upphæð.
-
Bæjarstjórn, fundur 141 liður 18
Bæjarstjóri fylgdi viðauka 4 úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Viðaukinn fjallar um viðhald húsa í málaflokknum Félagslegar íbúðir. Liðurinn hækkar um 2.000.000 kr og viðskiptareikningur Félagslegra íbúða við aðalsjóð hækkar um sömu upphæð. Jafnframt lækkar handbært fé samstæðu Fjarðabyggðar um sömu upphæð.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 141 liður 3.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 359“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.