Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Gjaldskrá gatnagerðagjalda 2014

Mál 1310050 Fyrst á dagskrá 14. október 2013, síðast 17. október 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 360 liður 16

    Frá fundi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar 7.október.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá gatnagerðargjalda. Gjaldskráin hækki um 3% eða sem nemur verðbólguspá Hagstofu Íslands fyrir 2014. Gjaldskrá mun taka gildi 1. janúar 2014.

    Lesa alla bókunina (101 orð til viðbótar)

    Jafnframt samþykkir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tillögu mannvirkjastjóra að gefinn verði 50 % afsláttur á gatnagerðagjöldum fyrir allar íbúða- og iðnaðarlóðir á árinu 2014. Lagt er til að eftirfarandi skilyrði séu fyrir veitingu á afslætti:

    1.

    lóðarumsókn sé í skipulögðu hverfi.

    2.

    lokið hafi verið við lagningu allra heimæða og að yfirborð götu sé malbikað.

    3.

    að byggingarframkvæmdir hefjist á árinu 2014.

    4.

    að umsækjandi sé skuldlaus við sveitarfélagið.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrána að því undanskildu að afsláttur nái ekki til atvinnu- og iðnaðarlóða. Afsláttur af íbúðarlóðum nái einungis til ársins 2014. 50% afsláttur sé háður skilyrðum nefndarinnar. Gjaldskrá vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 141 liður 4.16

    Fundargerðin „Bæjarráð - 360“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is