Bæjarráð, fundur 412
12. janúar 2015, kl. 09:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 171 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 12. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjarðabyggð til framtíðar
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat Sævar Kristinsson frá KPMG, fjármálastjóri og markaðs- og upplýsingafulltrúi.
Farið yfir skipulag funda sem haldnir verða í næstu viku með íbúum Fjarðabyggðar.
-
2. Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1403072 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálstjóri.
Lagt fram sem trúnaðarmál, rekstrar- og framkvæmdayfirlit janúar - nóvember 2014 og tekju- og launakostnaðaryfirlit janúar - desember 2014 lagt fram af fjármálastjóra.
-
3. Beiðni KFF er varðar atvinnu og húsnæðismál leikmanna
Mál 1501097 Allur ferill málsins
Bréf Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar er varðar íbúða- og atvinnumál.
Bæjarráð vísar til reglna um útleigu húsnæðis til íþrótta- og menningarmála. Störf sveitarfélagsins eru auglýst laus til umsóknar þegar ákveðið er að ráða í þau og þá opin öllum til umsóknar.
Bæjarritara falið að svara erindi.
-
4. Búfénaður í Mjóafirði - Trúnaðarmál
Mál 1412055 Allur ferill málsins
Framlagt svar Matvælastofnunar við bréfi bæjarráðs vegna eftirleita í Mjóafirði.
Jafnframt lögð fram drög að bréfi bæjarstjóra til Ólafíu Einarsdóttur vegna eftirleitanna.
Bæjarráð samþykkir bréfið og felur bæjarstjóra undirritun þess.
-
5. Drög að reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga
Mál 1501005 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Fram lögð umsögn fjármálastjóra um drög að reglum um bókhald, fjárhagsáætlarnir og ársreikninga sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir umsögn og felur fjármálastjóra að senda hana hlutaðeigandi aðilum.
-
6. Gjaldskrá og reglur vegna skipulagðra samgangna 2014
Mál 1310045 Allur ferill málsins
Tekin umræða um reglur um niðurgreiðslu á ferðum starfsmanna með skipulögðum samgöngum.
Reglurnar voru samþykktar 18. september 2014 og hafa verið í gildi í þrjá mánuði. Ætlunin var að taka þær til endurskoðunar fyrir árslok 2014.
Bæjarráð samþykkir að reglurnar verði endurskoðaðar þegar ár er liðið frá því þær tóku gildi eða fyrir 1. október 2015.
-
7. Snjóruðningur við Dalahöllina
Mál 1501021 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Hestamannafélagsins Blæs þar sem farið er fram á að bæjarfélagið hlutist til um snjómokstur í Norðfjarðarsveit.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðninni og felur bæjarritara að svara bréfritara.
-
8. Tilnefningar í samráðsvettvang vegna vinnu við gerð nýrrar sóknaráætlunar fyrir Austurland 2015-2020
Mál 1501056 Allur ferill málsins
Samband sveitarfélaga Austurlandi óskar eftir tilnefningu um skipan fulltrúa Fjarðabyggðar í samráðshóp um sóknaráætlun landshlutans. Tilnefningin þarf að berast fyrir 20. janúar en gert er ráð fyrir að meginþungi starfs samráðsvettvangsins verði frá 1. febrúar til 1. maí nk.
Bæjarráð tilnefnir Ástu Kristínu Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra atvinnumála og Helgu Guðrúnu Jónasdóttur til vara, til setu í hópnum.
-
9. Vélsmiðja á Neseyri
Mál 1402084 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá Óla Hans Gestssyni, dagsett 7. október 2014, þar sem óskað er eftir viðræðum við Fjarðabyggð um kaup á gömlu vélsmiðjunni á Neseyri að Eyrargötu 5. Einnig lögð fram beiðni um afsal húsnæðisins til Guðröðar Hákonarsonar og Guðbjarts Hjálmarsson til endurgerðar hússins.
Bæjarráð óskar eftir umsögn eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar er varðar skipulagsmál svæðisins.
-
10. Vallarsamningar - Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar
Mál 1404018 Allur ferill málsins
Lagður fram auglýsingasamningur við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar sem samþykktur var árið 2014 fyrir næstu þrjú ár.
Veita þarf fjármagni af liðnum óráðstafað 21690 í auglýsingarsamning við KFF vegna ársins 2015. Upphæðin er 1.500.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að veita af liðnum óráðstafað 21690, 1.500.000 kr., til auglýsingarsamnings.