Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 411

5. janúar 2015, kl. 09:00 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 170 liður 2

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Sævar Guðjónsson og Valdimar O. Hermannsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 411 frá 5.janúar 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skammtímafjármögnun Fjarðabyggðar

    Mál 1407051 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Lagt er til að bæjarráð heimili að framlengja í allt að eitt ár yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka á greiðslureikningi Fjarðabyggðar allt að 200 milljónir króna.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Verklagsregla um innheimtu reikninga og viðskiptakrafna Fjarðabyggðar

    Mál 1501004 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlögð tillaga fjármálastjóra að verklagsreglu um innheimtu reikninga og viðskiptakrafna Fjarðabyggðar. Verklagsreglan er meðal annars sett vegna ábendinga endurskoðenda Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð staðfestir verklagsregluna.

  3. 3. Drög að reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga

    Mál 1501005 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Innanríkisráðuneytið óskar eftir umsögn Fjarðabyggðar um drög að nýrri reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Skilafrestur er til 14. janúar 2015.

    Fjármálastjóra falið að vinna drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð.

  4. 4. Fjármál 2014

    Mál 1501010 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Umræða tekin um fjármál sveitarfélagsins, eftirfylgni, fjárhagsáætlun, uppgjör, samninga ofl.

  5. 5. Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum

    Mál 1410164 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat verkefnisstjóri atvinnumála.

    Farið yfir stöðu verkefna er tengjast atvinnumálum í Fjarðabyggð.

  6. 6. Endurskoðun á samningi um Skólaskrifstofu Austurlands A-hluti

    Mál 1412062 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að endurskoðuðum samningi um Skólaskrifstofu Austurlands.

    Bæjarráð óskar eftir umsögn fræðslunefndar og hún komi til umfjöllunar bæjarráðs að nýju.

  7. 7. Málefni Upplýsingamiðstöðvar Austurlands

    Mál 1411035 Allur ferill málsins

    Fram lögð fundargerð stýrihóps um framtíð upplýsingamiðstöðvar Austurlands á Egilsstöðum.

    Bæjarráð er sammála niðurstöður stýrihópsins um að samið sé til eins árs um að Húsi handanna sé falin rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar til eins árs.

  8. 8. Fjarðabyggð til framtíðar

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Lagðir fram til kynningar samningar til kynningar við KPMG og Ingvar Sigurgeirsson vegna ráðgjafar.

    Rætt um fyrirkomulag íbúafunda og tímasetningar á þeim.

  9. 9. Kynning á tillögu að starfsleyfi fyrir Síldarvinnsluna hf., Neskaupstað

    Mál 1412114 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Umhverfisstofnunar um kynningu á tillögu að starfsleyfi fyrir fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  10. 10. Ósk um tímabundið leyfi frá störfum bæjarfulltrúa

    Mál 1501011 Allur ferill málsins

    Framlögð umsókn Estherar Aspar Gunnarsdóttur um tímabundið leyfi frá störfum frá 1. janúar til 1. júlí 2015.

    Einar Már Sigurðarson tekur sæti hennar í bæjarstjórn og önnur nefndaskipan vegna orlofs er óbreytt.

    Bæjarráð samþykkir beiðni um tímabundið leyfi.