Skammtímafjármögnun Fjarðabyggðar
Mál 1407051 Fyrst á dagskrá 5. janúar 2015, síðast 8. janúar 2015. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 411 liður 1
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lagt er til að bæjarráð heimili að framlengja í allt að eitt ár yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka á greiðslureikningi Fjarðabyggðar allt að 200 milljónir króna.
Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 170 liður 1
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum, að yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka, fyrir allt að 200 milljónir kr., verði framlengd í allt að eitt ár.
-
Bæjarstjórn, fundur 170 liður 2.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 411“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.