Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 135

2. september 2014, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Eiður Ragnarsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 395 liður 10

  • Bæjarstjórn, fundur 162 liður 5

    Fundargerðir hafnarstjórnar nr. 135 og 136 teknar til afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 135 frá 2.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 2015

    Mál 1408022 Allur ferill málsins

    Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á næsta ári, eru öll bæjar- og sveitarfélög, söfn og stofnanir í landinu, hvött til að minnast þeirra mikilvægu réttinda sem kosningarétturinn er og 100 ára afmælisins 2015, með sýningum, málþingum, fyrirlestrum og öðrum viðburðum. Vísað til fastanefnda til kynningar með ósk um tillögu að viðburðum. Kynnt.

  2. 2. Aðalfundur Cruise Iceland á Ísafirði 23. maí 2014

    Mál 1402067 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Cruise Iceland sem haldinn var á Ísafirði 23. maí 2014. Kynnt.

  3. 3. Aðalfundur Fiskmarkaður Austurlands 2014

    Mál 1408116 Allur ferill málsins

    Rætt um fyrirhugaðan aðalfund og var samþykkt að framkvæmdastjóri yrði fulltrúi hafnarsjóðs á fundinum og formaður hafnarstjórnar til vara.

  4. 4. Fundargerðir CI á árinu 2014

    Mál 1401230 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 14. ágúst 2014. Til kynningar

  5. 5. Umfang sjávarútvegs á Austfjörðum - skýrsla unnin fyrir Austurbrú í júlí 2014

    Mál 1408013 Allur ferill málsins

    Skýrsla um umfang sjávarútvegs á Austfjörðum, unnin fyrir Austurbrú í júlí 2014, lögð fram til kynningar.

  6. 6. Vaktskúr við olíuafgreiðslu á Eskifirði

    Mál 1408093 Allur ferill málsins

    Erindi frá Mannvit fyrir hönd Skeljungs hf. dags. 7. ágúst 2014 þar sem óskað er eftir heimild til að staðsetja vaktskúr á olíubrygguna á Eskifirði. Fram kemur að umsókn um stöðuleyfi sé í ferli hjá byggingafulltrúa. Hafnarstjórn samþykkir að framkvæmdastjóri leysi málið í samstarfi við byggingafulltrúa.

  7. 7. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - 2018 hafa verið staðfestar af bæjarráði. Lagðar fram til kynningar en í þeim koma fram verklagsreglur og tímasetningar við undirbúning og úrvinnslu fjárhagsáætlunar hjá nefndum.