Hafnarstjórn, fundur 134
17. júlí 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Eiður Ragnarsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 391 liður 18
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 134 frá 17. júlí 2014, lögð fram og samþykkt, í umboði bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Mjóifjörður - Endurnýjun þekju
Mál 1402032 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 15. júlí 2014 frá opnun tilboða í endurnýjun þekju á Mjóafirði. Tvö tilboð bárust í verkið lægra boðið átti Ársverk efh upp á 11.927.223 kr eða 115,3% af kostnaðaráætlun sem var 10.343.600 kr.
Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
-
2. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 11. júní 2014 tekið fyrir á síðasta fundi hafnarstjórnar þann 1. júlí 2014. Farið var yfir drög að umsögn til bæjarráðs vegna beiðni um umsögn um tillögu að matsáætlun um 10.000 tonna viðbótareldi Laxa fiskeldis ehf á laxi í Reyðarfirði.
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leiti umsögnina og vísar henni til bæjarráðs.
Kristín Ágústsdóttir yfirgaf fundinn.
-
3. Allt að 24.000 tonna framleiðsla á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði - Beiðni um umsögn
Mál 1407037 Allur ferill málsins
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 3. júlí 2014 þar sem óskað er umsagnar Fjarðabyggðar um tillögu að matsáætlun fyrir allt að 24.000 tonna framleiðslu á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna umsögn um tillöguna í samráði og samstarfi við mannvirkjastjóra og skila til bæjarráðs.
-
4. Staða framkvæmda
Mál 1406157 Allur ferill málsins
Farið yfir framkvæmdir varðandi grjótvarnir og stöðu þeirra. Farið yfir áætlun um varnir. Hafnarstjórn er sammála áætluninni og felur framkvæmdastjóra að vinna úr henni.
Gerð grein fyrir stöðu mála varðandi framkvæmdir við Norðfjarðarhöfn.