Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 391

25. júlí 2014, kl. 09:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 160 liður 8

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 391 frá 25. júlí 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.

Dagskrá

  1. 1. 740 - Deiliskipulag Miðbær Norðfjarðar

    Mál 1302169 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.

    Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir tillögu að deiliskipulagi Miðbæjar Norðfjarðar til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og tveimur skýringaruppdráttum dags. 9. júlí 2014. Skipulagssvæðið nær til allrar byggðar á miðsvæði Norðfjarðar ásamt aðliggjandi byggð. Tillagan felur meðal annars í sér að skilgreindar eru núverandi lóðir og lóðarstærðir á svæðinu, að bæta aðgengi að skrúðgarði og sundlaug, að skilgreina miðbæjargötu og torg og að skilgreina öruggar umferðarleiðir fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

  2. 2. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn Fjarðabyggðar um tillögu um matsáætlun fyrir 10 þúsund tonna viðbótarframleiðslu á laxi í Reyðarfirði.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórna hafa samþykkt umsögn dagsett 14. júlí 2014.

    Bæjarráð leggst gegn viðbótareldi í Reyðarfirði, nema tryggt sé, að slíkt eldi

    hamli ekki fyrirhugaðri uppbyggingu á hafnsækinni þjónustu í firðinum.

    Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir drög að umsögn að öðru leyti og felur bæjarstjóra að koma henni á framfæri.

  3. 3. Umsögn um 24.000 tonna framleiðsla á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði.

    Mál 1407037 Allur ferill málsins

    Skipulagsstofnun óskar eftur umsögn um tillögu að matsáætlun vegna aukinnar framleiðslu á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði.

    Drög að umsögn lögð fram.

    Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir að aukið fiskeldi í Fáskrúðsfirði samræmist áætlunum Fjarðabyggðar og eru þær hugmyndir sem fram koma í tillögu að matsáætlun því í samræmi við stefnu sveitarfélagsins með ábendingum um tímalengd starfsleyfa, trygginga og að hún rúmist með annarri starfssemi.

    Bæjarráð samþykkir umsögn og felur bæjarstjóra að koma henni á framfæri.

  4. 4. Geymslusvæði fyrir gáma í Fjarðabyggð

    Mál 1402076 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að reglum og gjaldskrá vegna stöðuleyfa og gámavalla í Fjarðabyggð. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti.

    Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir reglurnar samhljóða með þeim breytingum að skýrt komi fram í reglunum viðurlög vegna slæmrar umgengni í gr. 7 og samræmi sé við auglýsingu. Bæjarrítar og mannvirkjastjóra falið að ganga endanlega frá reglum og tengdum gögnum.

    Gjaldskrá staðfest samhljóða.

  5. 5. Mjóifjörður - Endurnýjun þekju

    Mál 1402032 Allur ferill málsins

    Tvö tilboð bárust í verkið. Lægra boðið átti Ársverk ehf. upp á 11.927.223 kr eða 115,3% af kostnaðaráætlun sem var 10.343.600 kr.

    Hafnarstjórn hefur samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

    Bæjarráð staðfestir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  6. 6. Breytingar í Stöðvarfjarðarskóla

    Mál 1407075 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið sat mannvirkjastjóri.

    Fram lagt til kynningar minnisblað um framkvæmdir við Stöðvarfjarðarskóla en þær stefna framúr áætlunum þar sem umfang verksins reynist meira en ætlað var m.a. vegna brunavarna og viðhaldsþátta.

    Mannvirkjastjóra falið að leggja fyrir bæjarráð tillögu um forgangsröðun framkvæmda til að mæta aukakostnaði vegna verksins.

  7. 7. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Fram lagðar til staðfestingar reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - 2018 og fjárhagsáætlunarferlið.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar.

  8. 8. 735 Ofanflóðvarnir í Hlíðarendaá

    Mál 1406056 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.

    Fram lagðar tillögur að útfærslu á ofanflóðavörnum í Hlíðarendaá á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að kynning verði fyrir bæjarstjórn á fyrsta fundi eftir sumarleyfi og í framhaldi verði kynningarfundur fyrir íbúa.

    Bæjarráð er hlynt framkvæmdinni og vísar hönnun hennar til umfjöllunar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og til kynningar á bæjarstjórnarfundi 21. ágúst n.k. og kynningarfundar íbúa.

  9. 9. Gjaldskrá rafveitu Fjarðabyggðar 2014

    Mál 1310056 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat mannvirkjastjóri.

    Lögð er fram tillaga frá mannvirkjastjóra og rafveitustjóra, dagsett 14. júlí 2014, varðandi hækkun á sölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar frá og með 1. ágúst 2014. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt tillöguna fyrir sitt leyti. Bæjarráð samþykkir tillögu samhljóða.

  10. 10. Ósk um afslátt af gatnagerðargjöldum við Naustahvamm 60

    Mál 1407039 Allur ferill málsins

    Fram lögð beiðni Tandrabergs frá 3.júlí er varðar afslátt af gatnagerðargjöldum vegna lóðar í Neskaupstað.

    Bæjarritara og mannvirkjastjóra falið að skoða málið og leggja fyrir bæjarráð drög að svari.

  11. 11. Upplýsingatæknimál grunnskóla, uppfærsla Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði

    Mál 1405123 Allur ferill málsins

    Fram lagt minnisblað um stækkun samnings um altækan rekstur upplýsingatæknikerfa grunnskóla Fjarðabyggðar vegna Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðarskóla.

    Bæjarráð samþykkir að samningar við Nýherja um altæka rekstrarþjónustu fyrir skóla og stjórnsýslu verði framlengdir um eitt ár til viðbótar þegar umsömdum gildistíma.

  12. 12. Ný lög um opinber skjalasöfn

    Mál 1407054 Allur ferill málsins

    Forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga vekur athygli á að lög um Opinber skjalasöfn nr. 77/2014, hafa tekið gildi. Vísað til menningar- og safnanefndar og forstöðumanns safnastofnunar.

  13. 13. Málþing sveitarfélaga um þjónustu við nýja íbúa af erlendum uppruna 14.nóvemeber 2014 og ósk um tengilið

    Mál 1407068 Allur ferill málsins

    Fyrirhugað málþing 14.nóvember 2014, um þjónustu við nýja íbúa af erlendum uppruna. Óskað er eftir tengilið hjá sveitarfélaginu vegna undirbúnings málþingsins.

    Vísað til félagsmálanefndar.

  14. 14. Umsókn Parkinsonssamtakanna um styrk til að halda félagsfund í heimabyggð

    Mál 1407071 Allur ferill málsins

    Bréf formanns Parkinsonssamtakanna um styrk til að halda félagsfundi í heimabyggð.

    Vísað til félagsmálanefndar.

  15. 15. Ályktanir 9.fundar sveitarstjórnarvettvangs EFTA um loftslags- og orkumál og málefni norðurslóða

    Mál 1407058 Allur ferill málsins

    Ályktanir 9. fundar sveitarstjórnarvettvangs EFTA um loftlags- og orkumál og málefni norðurslóða lagðar fram til kynningar.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  16. 16. Aðalfundur Veiðifélags Dalsárs 16. júlí 2014

    Mál 1407015 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Veiðifélags Dalsár 16. júlí 2014 lögð fram til kynningar.

  17. 17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 97

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 97 frá 14.júlí 2014, lögð fram og samþykkt, í umboði bæjarstjórnar.

  18. 18. Hafnarstjórn - 134

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 134 frá 17. júlí 2014, lögð fram og samþykkt, í umboði bæjarstjórnar.