Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 133

1. júlí 2014, kl. 17:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Eiður Ragnarsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, varamaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, varamaður
  • Árni Þórhallur Helgason, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 390 liður 20

    Fundargerð hafnarstjórnar ,nr. 133 frá 1.júlí 2014, lögð fram og samþykkt, í umboði bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Staða framkvæmda

    Mál 1406157 Allur ferill málsins

    Farið yfir verkefni hafnarinnar og stöðu þeirra. Varamenn sátu þennan fyrst lið fundarins og yfirgáfu síðan fundinn.

  2. 2. Aðalfundur Cruise Iceland á Ísafirði 23. maí 2014

    Mál 1402067 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir heimsókn aðila frá útgerðum skemmtiferðaskipa sem voru hér á ferð á vegum Cruise Iceland 29. maí 2014. Fyrir fundinum lá minnisblað vegna heimsóknarinnar.

    Vísa ábendingum í síðustu málsgrein minnisblaðs til umfjöllunar í Eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  3. 3. Efnahagsleg áhrif íslenskra hafna

    Mál 1406129 Allur ferill málsins

    Á hafnasambandsþingi sem haldið var í Vestmannaeyjum í september 2012 var stjórn hafnasambandsins falið að láta gera úttekt á efnahagslegum áhrifum íslenskra hafna og vægi þeirra í íslensku efnahagslífi. Kynnt.

  4. 4. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu

    Mál 1406101 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thor Shipping ehf dags. 18. júní 2014 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Valeriy Zlenko skipstjóra á M/V Jan að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Valeriy Zlenko skipstjóra á M/V Jan.

  5. 5. Hafnaþing 2014 haldið 4. og 5. september á Dalvík og Ólafsfirði.

    Mál 1405140 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands þar sem boðað er á hafnaþing á Dalvík og Ólafsfirði 4. og 5 september 2014.

    Hafnarstjórn samþykkti að gefa aðalmönnum kost á að fara á þingið.

  6. 6. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 11. júní 2014 þar sem óskað er umsagnar um tillögu að matsáætlun um 10.000 tonna viðbótarframleiðslu Laxa fiskeldis ehf. á laxi í Reyðarfirði.

    Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna umsögn um tillöguna í samráði og í samstarfi við mannvirkjastjóra