Hafnarstjórn, fundur 132
2. júní 2014, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Benedikt Sigurjónsson, varamaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 387 liður 13
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 132 frá 2.júní 2014 lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 157 liður 3
Til máls tók Jens Garðar Helgason.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr.132 frá 2.júní 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2014
Mál 1401229 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 365 dags. 15. maí 2014. Til kynningar.
-
2. Beiðni um umsögn á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 ásamt umhverfisskýrslu vegna breyttrar landnotkunar við Eyri í Reyðarfirði
Mál 1405092 Allur ferill málsins
Erindi frá skipulagsfulltrúa Fjarðabyggðar dags. 20. maí 2014 þar sem óskað er eftir umsögn á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 ásamt umhverfisskýrslu vegna breyttrar landnotkunar við Eyri í Reyðarfirði.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdi við tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 né umhverfismatsskýrslu vegna breyttrar landnotkunar við Eyri í Reyðarfirði.
-
3. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Niðurstaða verðkönnunar vegna stoðveggjar ofan við löndunarbryggju smábáta á Norðfirði var opnuð 27. maí 2014 kl. 14. Eitt verðboð barst í verkið en fimm aðilar fengu gögn send. Boðið sem barst var frá Trévangi ehf. og var það upp á 8.798.750 kr. eða 144,5% af kostnaðaráætlun sem var upp á 6.090.000 kr. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við verðbjóðanda.
-
4. Kortlagning á starfsemi sjávarútvegs á Austfjörðum, og mögulegri nýsköpun sem gæti leynst þar
Mál 1402140 Allur ferill málsins
Framhald erindis sem tekið var fyrir í hafnarstjórn 25. mars 2014. Varðar kortlagningu á starfsemi sjávarútvegs á Austfjörðum. Á fundinum var tekið jákvætt í erindið en óskað frekari upplýsinga. Nú liggja þær fyrir og frekari upplýsingar um verkefnið og ósk um þátttöku hafnarsjóðs upp á 500.000 kr. Hafnarstjórn samþykkir að styðja verkefnið um 500.000 kr. en fer fram á upplýsingar um hvort og hvernig önnur sveitarfélög á Austfjörðum koma að málinu.
-
5. Sjávarútvegsskóli Fjarðabyggðar
Mál 1405107 Allur ferill málsins
Erindi frá Sjávarútvegsskóla Síldarvinnslunnar dags.22. maí 2014, þar sem óskað er eftir stuðningi til að víkka út starfsemi sjávarútvegsskólans þar sem krökkum í 8. bekk í öllum byggðarkjöfnum yrði gefin kostur á fræðslu um fiskvinnslu, fiskveiðar og sjávarútveg. Farið er fram á 450.000 kr. styrk frá Hafnarsjóði vegna þessa. Hafnarstjórn samþykkti styrkbeiðnina.