Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 387

11. júní 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 157 liður 1

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr.387 frá 11.júní 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Merking á Hótel Egilsbúð

    Mál 1405074 Allur ferill málsins

    Álit lögmanns vegna kröfu Trölla ehf. frá 13.maí sl. um notkun á nafninu Egilsbúð. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfi Trölla ehf. og rita Einkaleyfastofu bréf vegna málsins.

  2. 2. Þokusetur

    Mál 1311168 Allur ferill málsins

    Umsókn Þokuseturs í Vaxtarsamning Austurlands lögð fram til kynningar, en Fjarðabyggð er samtarfsaðili í umsókn. Bæjarráð samþykkir að vera samstarfsaðili að verkefninu.

  3. 3. Útleiga félagsheimilanna í Fjarðabyggð

    Mál 1403137 Allur ferill málsins

    Samningur um útleigu Félagslundar lagður fram til samþykktar. Bæjarráð samþykkir samninginn. Jafnframt felur bæjarráð forstöðumanni stjórnsýslu, framvegis, að ganga frá samningum um félagsheimilin, samningar sem eru til skemmri tíma en eins árs, í samráði við framkvæmdasvið.

  4. 4. Tilkynning um verðbreytingar. Hækkun á heildsöluverðskrá Landsvirkjunar

    Mál 1405143 Allur ferill málsins

    Tilkynning Landsvirkjunar um 2,3% hækkun á heilsölugjaldskrá fyrirtækisins. Vísað til framkvæmdasviðs til skoðunar.

  5. 5. Ungt fólk í Fjarðabyggð - 8.-10.bekkur 2014

    Mál 1405126 Allur ferill málsins

    Niðurstöður í rannsókn á högum og líðan ungmenna í 8. - 10. bekk í grunnskólum Fjarðabyggðar. Lagt fram til kynningar.

  6. 6. Vallarsamningar - Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar

    Mál 1404018 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að auglýsingasamningi við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn. Tekið af liðnum óráðstafað 21-69.

  7. 7. Stjórnarfundir StarfA 2014

    Mál 1403069 Allur ferill málsins

    Fundargerð ársfundar StarfA frá 29.apríl sl. lögð fram til kynningar.

  8. 8. Til umsagnar - umdæmamörk sýslumanna og lögreglustjóra

    Mál 1406036 Allur ferill málsins

    Tölvupóstur Sambandsins er varðar umdæmamörk sýslumanna og lögreglustjóra en frestur er veittur til 1.júlí til að gera athugasemdir. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn en felur bæjarstjóra að vera í sambandi við sýslumann vegna málsins.

  9. 9. Kosning fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014-2018

    Mál 1406044 Allur ferill málsins

    Bréf Sambandsins frá 6.júní er varðar kosningu fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014-2018. Vísað til fyrsta fundar nýrrar bæjarstjórnar.

  10. 10. 740 Sæbakki 25 - byggingarlóð

    Mál 1406040 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Sigurjóns Kristinssonar f.h. Nýpukolls ehf. dagett 6. júní 2014 þar sem sótt er um lóðina Sæbakka 25 undir byggingu 492 m2 raðhúss.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt úthlutun lóðarinnar fyrir sitt leyti.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  11. 11. Málefni tækjamiðstöðvar 2014

    Mál 1402154 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannvirkjastjóra vegna tækjakaupa í tækjamiðstöð. Um er að ræða tækjakaup á árinu 2014 fyrir kr. 26.500.000 en gert er ráð fyrir allri fjárhæðinni á fjárhagsáætlun ársins. Bæjarráð samþykkir tækjakaup sbr. tillögu.

  12. 12. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014

    Mál 1402090 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 43 frá 27. maí sl. lögð fram til kynningar.

  13. 13. Hafnarstjórn - 132

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 132 frá 2.júní 2014 lögð fram til kynningar.

  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 95

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 95 frá 10.júní 2014 lögð fram til kynningar.