Bæjarráð, fundur 388
23. júní 2014, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 159 liður 1
Jón Björn óskaði eftir að víkja af fundi undir afgreiðslu 1.liðar og að aldursforseti bæjarstjórnar, Einar Már Sigurðarson, tæki við stjórn fundarsins á meðan.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 388 frá 23.júní 2014, utan 1.liðar, samþykkt samhljóða.
Til máls undir 1.lið tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
1.liður fundargerðar bæjarráðs nr. 388 frá 23.júní 2014, samþykktur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Framlenging samnings um vátryggingaviðskipti
Mál 1406108 Allur ferill málsins
Jón Björn Hákonarson vék af fundi. Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt minnisblað um framlengingu á samningi um tryggingarviðskipti við Sjóvá Almennar tryggingar hf. til 31. desember 2015. Bæjarráð samþykkir að framlengja samningi til ársloka 2015 en felur fjármálastjóra að undirbúa útboð á tryggingum sveitarfélagsins þegar samningur rennur út.
-
2. Beiðning um stuðning við starf Hróksins í þágu barna og ungmenna á Grænlandi og Íslandi
Mál 1406084 Allur ferill málsins
Bréf Skákfélagsins Hróksins þar sem sveitarfélaginu er boðið að gerast velunnari félagsins, í þágu barna og ungmenna á Grænlandi og Íslandi, með því að gerast gull-, silfur- eða bronsbakhjarl. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um stuðning við starf Hróksins að þessu sinni.
-
3. Sjúkraþjálfun í Íþróttamiðstöð Eskifjarðar
Mál 1406039 Allur ferill málsins
Umsókn um afnot af aðstöðu í Íþróttamiðstöðnni á Eskfirði fyrir sjúkraþjálfun auk minnisblaðs íþrótta- og tómstundafulltrúa. Bæjarráð samþykkkir að leigja aðstöðu í íþróttamiðstöð til eins árs og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að meta árangur af samningi fyrir árslok.
-
4. Fasteignamat 2015
Mál 1406096 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Bréf Þjóðskrár Íslands frá 13.júní, er varðar fasteignamat ársins 2015. Málinu vísað til fjárhagsáætlunar 2015.
-
5. Fjármálastjórn Sveitarfélaga
Mál 1406097 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá 12.júní til allra sveitarfélaga um fjármálastjórn sveitarfélaga lagt fram til kynningar. Vísað til fjármálastjóra til skoðunar.
-
6. Refaveiðar í sunnanverðum Reyðarfirði 2014
Mál 1406049 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Sigurgeirs Jóhannssonar dagsett 10. júní, þar sem hann og Gunnar B. Ólafsson segja sig frá grenjavinnslu í sunnanverðum Reyðarfirði, þar sem þeir telja að ítrekað hafi verið spillt fyrir veiðum, bæði í ár og í fyrra. Tillaga umhverfisstjóra að lausn málsins. Bæjarráð er sammála tillögu umhverfisstjóra og felur honum lausn málsins.
-
7. An invitation to the Light in the City event in Eskilstuna
Mál 1406083 Allur ferill málsins
Boð á ráðstefnu í Eskilstuna 23. til 25.október 2014. Bæjarráð þakkar boðið og felur bæjarritara að svara.
-
8. Invitation to the Jyväskylä Housing Fair event and twin city programme on 22-24 July 2014
Mál 1403142 Allur ferill málsins
Boð Jyväskylä á kaupstefnu sem haldin veður 23. til 24.júlí 2014. Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á kaupstefnuna. Forseta bæjarstjórnar falin afgreiðsla málsins.
-
9. Tall Ships Race
Mál 1309009 Allur ferill málsins
Framlögð dagskrá vinabæjarmóts sem haldið verður í Esbjerg 1. til 3. ágúst nk. Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á mótið. Forseta bæjarstjórnar falin afgreiðsla málsins.
-
10. Skýrsla með niðurstöðum úttektar á sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum
Mál 1405137 Allur ferill málsins
Skýrsla með niðurstöðum úttektar á sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum lögð fram til kynningar og vísað til fræðslunefndar.
-
11. Tímabundin breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
Mál 1406008 Allur ferill málsins
Bréf innanríkisráðuneytisins frá 28.maí lagt fram til kynningar og vísað til fræðslunefndar.
-
12. Fundagerðir yfir- og undirkjörnefnda vegna sveitarstjórnarkosninga 2014
Mál 1405052 Allur ferill málsins
Fundargerð yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar frá 10.júní lögð fram.
-
13. Aðalfundur SSA 2014
Mál 1406100 Allur ferill málsins
Aðalfundur SSA verður haldinn 19. og 20.september á Vopnafirði. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að senda upplýsingar um fulltrúa um leið og þær liggja fyrir.
-
14. Ráðning bæjarstjóra 2014 - 2018
Mál 1406065 Allur ferill málsins
Samningur við Pál Björgvin Guðmundsson um starf bæjarstjóra lagður fram og samþykktur. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.