Bæjarráð, fundur 389
30. júní 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 160 liður 10
Fundargerð bæjarráðs, frá nr. 389 frá 30. júní 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.
Dagskrá
-
1. Mögulegt ólögmæti lána LS frá 2006
Mál 1207007 Allur ferill málsins
Hilmar Gunnlaugsson lögmaður og Snorri Styrkársson fjármálastjóri sátu þennan lið fundarins. Hilmar fór yfir niðurstöðu í dómi í máli Fjarðabyggðar gegn Lánasjóði sveitarfélaga en Fjarðabyggð tapaði málinu.
Hilmar og bæjarstjóra falið að fara yfir niðurstöðu dómsins og skoða framhaldið. Málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði lok ágúst og þá verður tekin ákvörðun um mögulega áfrýjun.
-
2. Endurgreiðsla á VSK fyrir Hitaveitu Fjarðabyggðar
Mál 1101028 Allur ferill málsins
Hilmar Gunnlaugsson lögmaður og Snorri Styrkársson fjármálastjóri sátu þennan lið fundarins. Hilmar fór yfir forsendur í dómi í máli Hitaveitu Fjarðabyggðar gegn Íslenska ríkinu, vegna endurgreiðslu á virðisaukaskatti, en Hitaveitan tapaði málinu. Málskostnaður var felldur niður. Bæjarráð er sammála um að áfrýja málinu til Hæstaréttar og felur Hilmari Gunnlaugssyni umsjón þess.
-
3. Krafa slökkviliðsmanna um greiðslu vangoldinna launa
Mál 1306112 Allur ferill málsins
Hilmar Gunnlaugsson og Snorri Styrkársson fjármálastjóri sátu þennan lið fundarins. Framlagður dómur í mál stefnanda Gísla Þór Briem gagnvart Fjarðabyggð vegna þrekálagsgreiðslna til slökkviliðsmanna. Fjarðabyggð var sýknað af kröfu stefnanda. Lagt fram til kynningar og bæjarritara falið að fylgja málinu eftir.
-
4. Greiðslur af skuldabréfi útg. 21.2.1998 nr. 13636
Mál 1402118 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt samkomulag Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og Fjarðabyggðar, frá 10.júní sl., um leiðréttingu á skuldabréfi Fjarðabyggðar við Eftirlaunasjóð starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar frá 1998. Bæjarráð samþykkir samkomulag og felur fjármálastjóra frágang þess.
-
5. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2014 - 2018
Mál 1406004 Allur ferill málsins
Umræða um skipan formanna fastanefnda samkvæmt 48.gr. samþykkta um stjórn Fjarðabyggðar í tengslum við umræðu á bæjarstjórnarfundi 26.júni sl. Haft hefur verið samband við Guðjón Bragason hjá Sambandinu um túlkun á 48.gr. og staðfesti hann túlkun forseta bæjarstjórnar á skipan formanna í fastanefndum.
-
6. Samþykktir Atvinnuþróunarsjóðs og framlag 2014
Mál 1311010 Allur ferill málsins
Jón Björn gerði grein fyrir efni síðasta fund í stjórn sjóðsins og hver næstu skref eru við endurskoðun á samþykktum sjóðsins. Næsti fundur í stjórn verður haldinn í ágúst. Samþykktir verða til afgreiðslu á aðalfundi í haust. Bæjarráð samþykkir greiðslu á framlagi ársins 2014, en óskar eftir að fjármálastjóri gangi frá viðauka við fjárhagsáætlun og leggi fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
7. OECD - nýsköpun í opinberum rekstri - Observatory of Public Sector Innovation
Mál 1406133 Allur ferill málsins
Opnuð hefur verið heimasíða OECD um nýsköpun í opinberum rekstri. Lagt fram til kynningar.
-
8. Dreifikerfi Landsnets - Orkuflutningar
Mál 1406156 Allur ferill málsins
Áskorun bæjarráðs Fljótsdalshéraðs er varðar nauðsynlegar úrbætur á dreifikerfi Landsnets lögð fram til kynningar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar telur mikilvægt að dreifikerfi Landsnets verði þannig uppbyggt að það geti þjónað íbúum og atvinnulífi á Austurlandi með fullnægjandi hætti. Bæjarráð telur jafnframt æskilegt að sveitarfélög í norðausturkjördæmi taki sig saman um að þrýsta á úrbætur í þessum málum.
-
9. Lenging ferðamannatímabils í Fjarðabyggð
Mál 1306022 Allur ferill málsins
Markaðs- og upplýsingafulltrúi sat þennan lið fundarins. Bréf Tanna Travel frá 20.júní, er varðar eflingu ferðaþjónustu í Fjarðabyggð, en í bréfinu er m.a. óskað eftir fundi með bæjarráði. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að boða bréfritara á fund bæjarráðs.